Innlent

Vitni í Stokkseyrarmálinu lét ekki sjá sig

Aðalmeðferð í Stokkseyrarmálinu stendur yfir.
Aðalmeðferð í Stokkseyrarmálinu stendur yfir. mynd/gva
Svanur Birkir Tryggvason, einn þeirra sem bera áttu vitni í Stokkseyrarmálinu svokallaða, lét ekki sjá sig við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Hann er á vitnalista ríkissaksóknara og er sagður mikilvægt vitni í málinu. Embætti ríkissaksóknara vill hafa uppi á manninum og eru þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Svans beðnir að hafa samband við lögreglu.


Tengdar fréttir

Hótaði fjölskyldunni lífláti: „Ég ætla að byrja á þér“

Fjölskylda barnsmóður Stefáns Loga Sívarssonar gaf skýrslu í morgun í aðalmeðferð Stokkseyrarmálsins. Stefán er meðal annars ákærður fyrir að hafa ráðist inn á heimili foreldra barnsmóðurinnar og hótað fjölskyldunni lífláti.

Gríðarleg leit vegna meints ofbeldishrotta - fjölskyldufólk stöðvað

Tveir menn voru handteknir við Laugarvatn í gærkvöldi eftir viðamiklar aðgerðir lögreglu. Málið tengist hrottalegri líkamsárás. Sjónarvottur við Laugarvatn var á leiðinni heim með fjölskyldu úr sumarfríi þegar við þeim blasti þyrla og lögregluleit.

Stefán Logi járnaður í Miðhúsaskógi

Stefán Logi Sívarsson var handtekinn við sumarbústað í Miðhúsaskógi fyrir stundu. Sérsveit lögreglu stóð að handtökunni, en fimm lögreglubílar voru á staðnum og viðbúnaður mikill.

Grunaðir um minnst þrjár hrottafengnar líkamsárásir

Stefáni Loga Sívarsson,sem lögregla handtók í Miðhúsaskógi í gær, er meintur höfuðpaur í hrottafengnu líkamsárásarmáli á Stokkseyri. Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Hópurinn er grunaður um tvær árásir til viðbótar.

Sjónarvottar segja fórnarlambið hafa verið vankað og blóðugt

Fórnarlambið var illa til reika og vankað. Hann var blóðugur, með marga skurði í andliti, bólginn og átti erfitt með að tala og var illskiljanlegur vegna þess hversu bólginn hann var. Einnig hékk laus flipi úr neðri vör mannsins á stærð við tíu krónu pening.hvern tíma.

Fórnarlamb mannráns með sár eftir svipuhögg á bakinu

Lögregla leitar Stefáns Loga Sívarssonar, sem er grunaður um að hafa svipt mann frelsi sínu, farið með hann til Stokkseyrar og beitt hann hrottalegu ofbeldi. Að minnsta kosti tveir menn sitja í varðhaldi vegna málsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×