Innlent

Stokkseyrarmálið: Fórnarlamb segir misþyrmingarnar hafa staðið yfir í hálfan sólarhring

Fanney Birna Jónsdóttir og Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Stefán Logi Sívarsson í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Stefán Logi Sívarsson í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. mynd/gva
Tekin var skýrsla af öðru fórnarlamba í Stokkseyrarmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur nú fyrir skömmu, en skýrslur voru teknar af sakborningunum í morgun. Maðurinn lýsti misþyrmingum sem stóðu yfir í hálfan sólarhring, og augljóst var að upprifjunin tók mikið á hann, en skýrslutakan tók um klukkustund. Ástæða er til að vara við eftirfarandi lýsingum.

Maðurinn segir Stefán Loga Sívarsson, einn sakborninga, hafa hringt og beðið sig að fela fíkniefni á heimili við Grýtubakka þar sem hann dvaldist, því að lögreglan gæti komið.

Tíu mínútum síðar hafi Stefán Logi komið að Grýtubakka ásamt hinum sakborningunum og þremur öðrum. Stefán Logi hafi kýlt sig í andlitið, rifið í hálsmen sem hann bar og reynt að kyrkja hann, en við það hafi keðjan slitnað.

Þorði ekki að gera lögreglu vart við sig

Maðurinn segist hafa greint Stefáni Loga frá sambandi barnsmóður hans við hitt fórnarlambið og við það hafi Stefán Logi reiðst mikið, þá aðallega vegna þess að sér hefði ekki verið sagt það fyrr.

Hann lýsir því að næst hafi þeir farið út og þar hafi  Gísli Þór og Hinrik Geir stungið sig í öxlina með eggvopni. Að því loknu hafi þeir ekið upp að Spöng þar sem Stefán Logi hafi stungið sig með litlu eggvopni í höndina. Þá hafi verið keyrt aftur að Grýtubakka þar sem ofbeldið hafi haldið áfram. Stefán Blackburn hafi meðal annars hent í sig sprautu sem maðurinn hafði sjálfur notað og hafi hún stungist í hann, en sprautunálar lágu á víð og dreif um íbúðina.

Lögreglan hafi komið þar að og þá hafi sakborningarnir flúið með manninn í næsta stigagang og falið sig þar til lögreglan hafi farið aftur. Verjendur spurðu manninn ítrekað hvers vegna hann hafi ekki reynt að gera vart við sig eða hlaupa í burtu. Hann svaraði því þannig að hann hafi ekki þorað því sökum ótta við ákærðu.

Sendur reglulega í sturtu til að þrífa af sér blóðið

Maðurinn segir að í íbúðinni við Grýtubakka hafi hinn maðurinn sem raðist var á verið eftir barsmíðarnar við Spöngina, og að sakborningarnir hafi byrjað að beita hann ofbeldi. Næst hafi verið keyrt til Hafnarfjarðar, að heimili föður Stefáns Loga, þar sem hinum manninum hafi verið byrlaðar einhverjar töflur“. Ekið hafi verið með hann að Grýtubakka eina ferðina enn, hann hafi verið skorinn í andlitið og barinn með kylfum, og þannig hafi þetta gengið „áfram bara í sólarhring“. Hann hafi reglulega verið sendur í sturtu til að þrífa af sér blóðið.

Í Hafnarfirði hafi faðir Stefáns Loga spurt þá hvað væri í gangi og beðið þá að hætta en því hafi ekki verið sinnt. Þá segir maðurinn að á einhverjum tímapunkti hafi honum verið sagt að það ætti að fara með hann í Heiðmörk og drepa hann. Undir morgunn hafi hinn maðurinn verið sóttur og honum ekið til Stokkseyrar. Honum sjálfum hafi hins vegar verið sleppt.

Maðurinn segir að sér hafi liðið mjög illa eftir árásina og að hann fái enn martraðir vegna hennar. Hann hafi ekki leitað sér aðstoðar en hann hafi þó farið í blóðprufu eftir árásina til að kanna mögulegt lifrarbólgusmit.

Verjendur fóru í hliðarherbergi til að ræða við skjólstæðinga sína áður en skýrslutökunni lauk. Nú er deilt um hvort að síðara fórnarlambið beri vitni í dag eða á morgun. Verjendur vilja hætta en sækjendur halda áfram.

Uppfært:

Síðara fórnarlambið mun bera vitni í dag. Því er líklegt að þinghaldið muni standa vel yfir klukkustund í viðbót. Verjendurnir eru mjög ósáttir.


Tengdar fréttir

Enn einn í varðhald vegna grófra árása

Sjö manns hafa sætt gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á nokkrum hrottafengnum líkamsárásarmálum. Tveimur þeirra hefur verið sleppt. Ekki útilokað að fleiri verði handteknir. Eldfimum vökva var skvett á eitt fórnarlambið og eldur borinn að.

Íbúar á Stokkseyri skelkaðir

Íbúar á Stokkseyri eru skelkaðir eftir að manni var haldið nauðugum í húsi bænum þar sem hann var pyntaður af ofbeldismönnum í sólarhring. "Sárgrætilegt og hræðilegur atburður", segir eigandi Shell skálans, þar sem maðurinn kom illa særður inn.

Gríðarleg leit vegna meints ofbeldishrotta - fjölskyldufólk stöðvað

Tveir menn voru handteknir við Laugarvatn í gærkvöldi eftir viðamiklar aðgerðir lögreglu. Málið tengist hrottalegri líkamsárás. Sjónarvottur við Laugarvatn var á leiðinni heim með fjölskyldu úr sumarfríi þegar við þeim blasti þyrla og lögregluleit.

Enn leitað að Stefáni Loga

Enn er verið að leita að Stefáni Loga Sívarssyni, sem er grunaður um frelsissviptingu og hrottalega líkamsárás.

Stefán Logi járnaður í Miðhúsaskógi

Stefán Logi Sívarsson var handtekinn við sumarbústað í Miðhúsaskógi fyrir stundu. Sérsveit lögreglu stóð að handtökunni, en fimm lögreglubílar voru á staðnum og viðbúnaður mikill.

Stunginn með notaðri sprautunál

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir Stefáni Loga Sívarssyni, sem grunaður er um að hafa tekið þátt í grófum líkamsárásum og frelsissviptingum síðastliðið sumar, meðal annars í sumarbústað nálægt Stokkseyri. Rétt er að vara við lýsingum í þessari frétt.

"Hefur aldrei komið til Stokkseyrar“

Stefán Logi Sívarsson, sem grunaður er um aðild að líkamsárás og frelsissviptingu ungs manns, var yfirheyrður af lögreglu á laugardag.

Ákærðu fá ekki að vera viðstaddir vitnaleiðslur

Fyrirtaka í Stokkseyramálinu svokallaða fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegi í dag. Þar var tekist á um hvort sakborningum í málinu verði gert að víkja úr dómsal meðan á vitnaleiðslum stendur. Aðalmeðferð í málinu hefst á mánudag og standa yfir í þrjá daga.

Stefán Logi áfram í gæsluvarðhaldi

Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja vikna gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Stefáni Loga Sívarssyni og tveimur öðrum sem eru grunaðir um aðild að minnst þremur alvarlegum líkamsárásarmálum.

Grunaðir um minnst þrjár hrottafengnar líkamsárásir

Stefáni Loga Sívarsson,sem lögregla handtók í Miðhúsaskógi í gær, er meintur höfuðpaur í hrottafengnu líkamsárásarmáli á Stokkseyri. Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Hópurinn er grunaður um tvær árásir til viðbótar.

Gæslulvarðhald framlengt yfir Stefáni Loga

Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í morgun gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Stefáni Loga Sívarssyni til 2. október vegna aðildar að minnst þremur alvarlegum líkamsárásarmálum.

Neituðu sök á hrottafengnum líkamsárásum

Þingfesting fór fram í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli gegn Stefáni Loga Sívarssyni og fjórum öðrum mönnum fyrir tvær hrottafengnar líkamsárásir, mannrán og langvinnar pyntingar um mánaðamót júní og júlí síðastliðinna.

Sjónarvottar segja fórnarlambið hafa verið vankað og blóðugt

Fórnarlambið var illa til reika og vankað. Hann var blóðugur, með marga skurði í andliti, bólginn og átti erfitt með að tala og var illskiljanlegur vegna þess hversu bólginn hann var. Einnig hékk laus flipi úr neðri vör mannsins á stærð við tíu krónu pening.hvern tíma.

Fórnarlamb mannráns með sár eftir svipuhögg á bakinu

Lögregla leitar Stefáns Loga Sívarssonar, sem er grunaður um að hafa svipt mann frelsi sínu, farið með hann til Stokkseyrar og beitt hann hrottalegu ofbeldi. Að minnsta kosti tveir menn sitja í varðhaldi vegna málsins.

Einn hinna grunuðu stakk af til Danmerkur

Lögreglan handtók á dögunum enn einn mann, grunaðan um aðild að líkamsárásarmálinu sem kennt hefur verið við Stefán Loga Sívarsson og Stokkseyri. Hann kom til Íslands í lögreglufylgd eftir að hafa stungið af til Danmerkur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×