Viðskipti innlent

Fréttaskýring: Bakkavararbræður gera milljarðatilboð í félagið

Bræðurnir hafa gengið á milli annarra hluthafa á undanförnum dögum og boðist til að kaupa hluti þeirra í Bakkavör Group. fréttablaðið/vilhelm
Bræðurnir hafa gengið á milli annarra hluthafa á undanförnum dögum og boðist til að kaupa hluti þeirra í Bakkavör Group. fréttablaðið/vilhelm
Munu Ágúst og Lýður eignast Bakkavör?



Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir hafa gert tilboð til allra hluthafa í Bakkavör Group og vilja eignast félagið sem þeir stofnuðu að fullu. Þeir hafa boðið verð sem er hærra en það sem var á nýlegri hlutafjáraukningu. Þar eignuðust bræðurnir 25 prósenta hlut fyrir um fjóra milljarða króna. Miðað við það er ljóst að bræðurnir hafa boðið á annan tug milljarða króna hið minnsta í hlut annarra í Bakkavör Group.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa þeir boðist til að greiða í reiðufé og að ekki sé um lánsfé frá fjármálastofnunum að ræða. Viðmælendur Fréttablaðsins innan lífeyrissjóða sem eiga hluti í Bakkavör Group segja mikið rætt um það hvaðan peningarnir sem bræðurnir séu að bjóða komi, enda hafi öll stór félög sem þeir áttu í fyrir bankahrun orðið gjaldþrota eða lent í annars konar fjárhagslegum hremmingum. Á meðal þeirra eru Kaupþing, Exista (sem í dag heitir Klakki) og Bakkavör. Ágúst er í dag forstjóri Bakkavarar og Lýður stjórnarformaður félagsins.

Heimildir Fréttablaðsins herma að stórir innlendir hluthafar ætli sér ekki að taka tilboði bræðranna og vinni nú að því að mynda meirihlutablokk í stjórn félagsins til að tryggja yfirráð sín. Bæði sé tilboðið of lágt miðað við núvirði félagsins, sem er talið vera allt að 40 milljarðar króna, auk þess sem vonir séu bundnar við að virðið muni aukast. Velta Bakkavarar Group á árinu 2011 var enda rúmlega 320 milljarðar króna og því ljóst að félagið er mjög verðmætt ef vel tekst til að endurskipuleggja það.

Eins og staðan er í dag á Arion banki 34 prósenta hlut í Bakkavör Group og er stærsti einstaki eigandi félagsins. Þá á Lífeyrissjóður verzlunarmanna sjö prósent og Gildi lífeyrissjóður um fimm prósenta hlut. Þessir þrír aðilar mynda bakbeinið í meirihlutablokkinni. Auk þess hafa smærri lífeyrissjóðir og sjóðir í stýringu banka sem eru í hluthafahópnum heitið að standa að henni.

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) seldi hins vegar allan eignarhlut sinn í Bakkavör Group eftir að hugmyndir komu upp um hlutafjáraukninguna sem leiddi til þess að bræðurnir urðu aftur eigendur í félaginu.

Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, sagði við Fréttablaðið 6. júní síðastliðinn að salan hefði verið vegna þess að sjóðurinn hefði ekki verið sáttur við þær hugmyndir sem kynntar voru á hluthafafundi Bakkavarar í maí um hlutafjáraukninguna. Hann sagði að tilboðið hefði komið í gegnum ótengdan aðila. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru það þó bræðurnir Ágúst og Lýður sem eignuðust á endanum þann hlut og greiddu um einn milljarð króna fyrir. thordur@frettabladid.is


Tengdar fréttir

Kröfuhafar með stjórnartaumanna

Á aðalfundi Bakkavarar Group sem haldinn var 23. maí síðastliðinn samþykktu kröfuhafar umtalsverðar breytingar á félaginu. Í þeirri breytingu fólst meðal annars að íslenskir kröfuhafar Bakkavarar Group, að mestu bankar og lífeyrissjóðir, breyttu kröfum sínum í hlutafé og eignuðust félagið að mestu. Samhliða fengu Ágúst og Lýður Guðmundssynir að kaupa um fjórðungshlut í því á um fjóra milljarða króna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×