Sport

Björn og Angela unnu Laugavegshlaupið

Björn kemur sigri hrósandi í mark.
Björn kemur sigri hrósandi í mark. mynd/ólafur andri magnússon
Laugavegshlaupið fór fram í dag en þá er hlaupið frá Landmannalaugum niður í Þórsmörk. Sigurvegarar dagsins settu báðir brautarmet.

Björn Margeirsson en hann kom í mark á 4:19,55 og bætti þar með met Þorbergs Inga Jónssonar frá 2009. Það var 4:20,32.

Friðleifur K. Kristjánsson varð annar í mark á 4:24,03 og Helgi Júlíusson varð þriðji á 4:39,25.

Skotinn Angela Mudge vann í kvennaflokki en hún hljóp á 5:00,55 og sló þar með met Helenu Ólafsdóttur frá 2009 er hún hljóp á 5:21,12.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×