Fótbolti

Heimir: Eigum enn möguleika

Stefán Árni Pálsson á Kaplakrikavelli skrifar
„Við spiluðum virkilega vel í þessum leik og fengum mörg fín færi,"sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH eftir leikinn.

„Það má skrifa markið sem við fengum á okkur á einbeitingarleysi en menn gleymdu sér um stundarsakir og það kann ekki góðri lukku að stýra".

„Við vorum í raun klaufar að skora ekki fleiri mörk í kvöld en við fengum heldur betur færin til þess. Við hefðum auðvita viljað sigur en jafntefli heldur okkur samt sem áður ennþá inn í keppninni".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×