Viðskipti innlent

Edge-reikningarnir kosta Breta 213 til 307 milljarða

Tryggingasjóður innstæðueigenda í Bretlandi (FSCS) áætlar að kostnaður hans vegna Edge-reikninga Kaupþings Singer & Friedlander (KSF), dótturbanka Kaupþings, og annarra innstæðna bankans verði á bilinu 213 til 307 milljarðar kr. þegar að eignir verði að fullu búnar að ganga upp í þann kostnað.

Fjallað er um málið í Viðskiptablaðinu en þar segir að þetta komi fram í ársskýrslu FSCS sem var birt í lok júlí síðastliðinn. Allar útgreiðslur FSCS vegna falls KFS voru fjármagnaður að fullu með láni frá ríkissjóði Bretlands. Það eru því á endanum breskir skattgreiðendur sem bera skaðann.

FSCS birti fyrsta yfirlit sitt yfir ætlaðan kostnað vegna falls KFS í byrjun desember 2009. Þann 16. desember 2009, viku eftir birtingu yfirlitsins, tilkynnti Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar (SFO) að hún væri formlega að rannsaka hvort að Kaupþing hafi flutt háar fjárhæðir úr KSF heim til móðurbankans á Íslands síðustu daganna fyrir fall hans.

SFO grunaði einnig að Kaupþing hafi sett fram vísvitandi rangar, og jafnvel falsaðar upplýsingar, þegar að bankinn var að laða fjárfesta til þess að leggja fé sitt inn á Edge-netreikninga bankans. Starfsmenn SFO höfðu þá verið með möguleg brot Kaupþings í forkönnun frá byrjun september 2009, að því er segir í Viðskiptablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×