Viðskipti erlent

Bloomberg/BBC: Rannsóknin tengist Edge

Bæði Bloomberg fréttaveitan og BBC segja í fréttum sínum af handtöku Tchenguiz-bræðra og Kaupþingsmanna í London í morgun að rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar SFO tengist m.a. Edge reikningum Kaupþings í Bretlandi.

Bloomberg og BBC rifja það upp að árið 2009 hafi saksóknarar í Bretlandi hafið rannsókn á mögulegum fjársvikum hjá Kaupþingi fyrir hrunið haustið 2008. SFO sagði á þeim tíma að deildin hefði sérstakan áhuga á viðleitni Kaupþings til að fá breska fjárfesta og almenning til að leggja inn fé á hávaxtareikninga sem báru nafnið Edge.

Yfir 30.000 manns áttu reikninga á Edge þegar Kaupþing féll haustið 2008.

Þess ber að geta að Edge reikningunum var komið yfir í hollenskan banka þegar Kaupþing féll og ekki er vitað til að neinn hafi tapað á þeim. Hinsvegar urðu innistæðueigendurnir að sætta sig við mun lægri vexti á innlánum sínum hjá hollenska bankanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×