Viðskipti erlent

Askan gæti kæft allan hagvöxt í Evrópu á þessu ári

Í frétt Reuters segir að askan valdi því að sumarleyfisferðir eru blásnar af, vörusendingum seinkar og verulega dregur úr eftirspurn eftir þotueldsneyti.
Í frétt Reuters segir að askan valdi því að sumarleyfisferðir eru blásnar af, vörusendingum seinkar og verulega dregur úr eftirspurn eftir þotueldsneyti.

Efnahagsleg áhrif öskunnar úr gosinu í Eyjafjallajökli gætu orðið víðtæk í Evrópu. Hagfræðingar telja að ef gosið stendur mánuðum saman muni það valda samdrætti í hagvexti um 1-2% í álfunni. Áður en gosið hófst var því spáð að hagöxtur í Evrópu yrði á bilinu 1-1,5% í ár.

Fjallað er um málið á Reuters en þar kemur fram að stjórnvöld um alla norðanverða Evrópu eru undir miklum þrýstingi frá flugfélögnum um að opna lofthelgi landa sinna. Flugfélög í Danmörku hafa farið fram á ríkisaðstoð til að halda rekstri sínum gangandi meðan á gosinu stendur.

Í frétt Reuters segir að askan valdi því að sumarleyfisferðir eru blásnar af, vörusendingum seinkar og verulega dregur úr eftirspurn eftir þotueldsneyti.

Þá er nafnt að afrískir útflutjendur á ávöxtum og blómum treysta á flugfrakt til að koma vörum sínum á markað í Evrópu, tæknifyrirtæki treysta einnig á flug til að koma vörum sínum á áfangastað og ráðstefnuhald er í uppnámi.

Vanessa Rossi aðalhagfræðingur Chatham House segir að ef gosið heldur áfram næstu vikurnar gæti það leitt til þess að enginn hagvöxtur yrði í Evrópu í ár.

"Askan myndi bókstaflega kæfa efnahagsbatann," segir Rossi. "Vandamálið er að enginn getur sagt fyrir um hvenær gosinu muni ljúka."

Ferðamennska og ferðamannaiðnaðurinn veltir um 3 trilljónum dollara á ári og af þeirri veltu er þriðjungurinn í Evrópu, að mestu yfir sumarmánuðina. Þessi velta mun ekki öll glatast í Evrópu en Rossi telur að ferðamannaiðnaðurinn tapi 5 til 10 milljörðum dollara, eða allt að 1.260 milljörðum kr. á hverri viku sem gosið stendur.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×