Lífið

Dilana snýr aftur til landsins og syngur í rokkóperu

Atli Fannar Bjarkason skrifar
væntanleg til landsins 
Dilana syngur lag í íslenskri rokkóperu. Þorvaldur Bjarni sér um útsetningar, en vill að öðru leyti ekkert tjá sig um verkefnið.
væntanleg til landsins Dilana syngur lag í íslenskri rokkóperu. Þorvaldur Bjarni sér um útsetningar, en vill að öðru leyti ekkert tjá sig um verkefnið.
Söngkonan Dilana Robichaux hefur tekið að sér hlutverk í íslenskri rokkóperu. Þetta staðfestir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, sem kemur meðal annars að útsetningum verksins. Nafnið er enn þá á huldu, sem og stærsti hluti þeirra sem að þessu dularfulla verkefni koma.

Dilana kemur til landsins í apríl og tekur upp lag fyrir rokkóperuna. Þorvaldur býst við að hún fari vel með lagið, enda henti það rödd hennar einkar vel.

„Ég er svolítið svag fyrir rifnum kvenmannsröddum eins og ég get stundum fengið Andreu [Gylfadóttur] til að gera," segir hann og hlær.

„Í ljósi þessa lags sem um ræðir get ég vel ímyndað mér að hún rúlli því upp. Þetta er röff lag en mjög melódískt. Hún er ekki bara blúsrödd, hún hljómar stundum eins og rafmagnsgítar og það þóknast mér vel!"

Óvíst er hvenær almenningur fær að heyra afraksturinn á plötu eða hvaða fleiri söngvarar ljá verkefninu rödd sína. Dilana tilkynnti á vefsíðu sinni að hún leiki myrkraengil sem dregur söguhetjuna á tálar, en annað fæst ekki upp gefið.

Dilana var einn helsti keppinautur Magna Ásgeirssonar í raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova, sem þjóðin fylgdist með árið 2006. Í kjölfarið heimsótti hún landið og kom meðal annars fram á tónleikum í Laugardalshöll ásamt öðrum keppendum úr þættinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×