Viðskipti innlent

Reyndu að fela aðkomu Ólafs í Al-Thani málinu

Sigríður Mogensen skrifar
Kaupþingsmenn reyndu að fela aðkomu Ólafs Ólafssonar, oftast kenndur við Samskip.
Kaupþingsmenn reyndu að fela aðkomu Ólafs Ólafssonar, oftast kenndur við Samskip.

Sjeikinn Mohammed Al-Thani frá Katar fékk 6,5 milljarða króna fyrir að lána nafn sitt í viðskiptum með 5% hlut í Kaupþingi rétt fyrir fall bankans, að því er fram kemur í DV í dag. Magnús Guðmundsson og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi stjórnendur bankans, eru sagðir hafa stýrt leikfléttunni. Þá hafi verið reynt að fela aðkomu Ólafs Ólafssonar.

DV birtir í dag endurrit af símtali Halldórs Bjarkars Lúðvígssonar, fyrrverandi starfsmanns fyrirtækjasviðs Kaupþings og Lilju Steinþórsdóttur í innri endurskoðun bankans frá því í ársbyrjun 2009, þar sem þau ræða kaup sjeiksins á 5% hlut í Kaupþingi sumarið 2008.

Halldór Bjarkar hafði við upphaf rannsóknar sérstaks saksóknara réttarstöðu grunaðs í málinu en er nú yfirheyrður sem vitni. Halldór Bjarkar og Lilja eru bæði starfsmenn Arion banka.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var símtalið hluti af rannsókn á málinu að frumkvæði innri endurskoðunar og skilanefndar Kaupþings. Í kjölfar hennar var málið sent í heild sinni til sérstaks saksóknara.

Samtalið varpar meðal annars ljósi á þátt Ólafs Ólafssonar í Al-Thani málinu en svo virðist sem farið hafi verið ýmsar krókaleiðir til að fela aðkomu hans að kaupunum. Þá hafi Al-Thani ekki lagt út neina peninga í viðskiptunum, né tekið á sig persónulega áhættu. Í samtalinu kemur einnig fram að hann hafi átt að fá 50 milljónir dollara, eða um sex og hálfan milljarð króna fyrir að lána nafn sitt í fléttuna.

Í símtalinu segir Halldór Bjarkar að Maggi og Hreiðar hafi samið þetta allt, eins og það er orðað. Um er að ræða þá Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings í Lúxemborg og Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóra móðurfélagsins en þeir virðast hafa stjórnað leikfléttunni. Þeir voru handteknir í byrjun maí í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings og sátu báðir í einangrun í rúma viku.

Eins og fram kom í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis voru viðskiptin gríðarlega flókin og fór 25 milljarða króna lán frá Kaupþingi í gegnum hin ýmsu félög áður en lánið endaði inn í félaginu Q Finance, sem að lokum keypti hlutabréfin í Kaupþingi.

Þegar kaupin voru tilkynnt var sagt að Al-Thani væri eigandi félagsins. Í samtalinu sem DV hefur undir höndum segir Halldór Bjarkar að tilgangur flækjunnar hafi verið til að fela það að Ólafur hafi í raun átt helminginn í því.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×