Innlent

Hefur trú á að grasið spretti

Guðni með nýborin lömb í fjárhúsinu.
Guðni með nýborin lömb í fjárhúsinu.

„Ég hef fulla trú á að grasið spretti upp úr öskunni í sumar því hér er rigningasamt og hlýtt en ég óttast að erfitt verði að heyja á túnunum þar sem askan rótast upp undan vélunum." Þetta segir Guðni Þorvaldsson, doktor í gróðurfræðum og einn þeirra sem nú sinnir kindum sínum og klárum við erfiðar aðstæður austur undir Eyjafjöllum. Jörðin hans Raufarfell er á því svæði sem öskulagið er hvað þykkast.

„Besta ráðið er að rækta túnin upp aftur og plægja öskuna niður í jarðveginn, þá verður hún bara til bóta, til lengri tíma litið. Ég mun gera það í áföngum," segir hann.

Guðni er reyndar bara frístundabóndi því hann býr í Reykjavík og starfar sem prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands. Hann tekur sér frí frá kennslunni um sauðburðinn sem nú er í fullum gangi og var einmitt að fóðra ærnar sínar þegar litið var við hjá honum. Þær úða í sig heyinu með glansandi snoppur og koma greinilega vel undan vetri, hvernig sem sumarhagarnir verða. Nokkrar eru bornar. Sú fyrsta bar fyrir mánuði og er stolt með sín stóru fyrirmálslömb í kró fremst í fjárhúsinu. Tvær þær næstu eru þrílembdar. Greinileg frjósemi í stofninum.

„Samkvæmt sónarskoðun verða 2,2 lömb undir hverri á í hjörðinni. Einhverjar ær verða því að ganga undir þremur lömbum í sumar ef öll lifa," segir Guðni. „En það er afleitt að koma ekki lambfénu út undir bert loft." - gun








Fleiri fréttir

Sjá meira


×