Innlent

Ásbjörn sækist eftir 1.sæti í Norðvesturkjördæmi

Ásbjörn Óttarsson
Ásbjörn Óttarsson

Ásbjörn Óttarsson, hefur ákveðið að sækjast eftir 1 -2 sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Ásbjörn er forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar og útgerðarmaður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ásbirni. Þar segist hann ennfremur hafa víðtæka reynslu af sveitastjórnarmálum og hafi setið í bæjarstjórn Snæfellsbæjar frá árinu 1994.

„þar af sem forseti bæjarstjórnar frá árinu 1998, einnig hefur hann gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi og Sjálfstæðisflokkinn síðastliðin 30 ár.

Ásbjörn telur afar mikilvægt að á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi veljist fólk með víðtæka reynslu.

Hann er 46 ára gamall, fæddur og uppalinn á Hellissandi en er búsettur á Rifi. Hann lauk skipstjórnarnámi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1983 og hefur allan sinn starfsaldur starfað sem sjómaður og útgerðarmaður.

Maki Ásbjarnar er Margrét G. Scheving og eiga þau þrjá syni."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×