Viðskipti innlent

Gengi hlutabréfa Bakkavarar hækkaði um 23,5 prósent

Bakkavararbræður.
Bakkavararbræður. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa í Bakkavör ruku upp um 23,5 prósent í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfanna endaði í 1,26 krónum á hlut eftir að hafa farið undir krónu á hlut í gær. Þá hafði það aldrei verið lægra.

Þá hækkaði gengi bréfa í Marel Food Systems um 0,16 prósent á sama tíma.

Gengi bréfa í Century Aluminum féll um 2,33 prósent á sama tíma, gengi bréfa Færeyjabanka lækkaði um 0,83 prósent og gengi Össurar lækkaði um 0,48 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) stendur óbreytt frá í gær í 260 stigum.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×