Viðskipti innlent

TM lánaði Samherja milljarð til að kaupa hlut í TM

Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar
Tryggingarmiðstöðin, undir forystu Óskars Magnússonar, braut lög þegar félagið lánaði Samherja einn milljarð króna til að kaupa hlut í sjálfu sér árið 2006. Óskar segir að endurskoðandi hafi gert athugasemdir við lánið. Fjármálaeftirlitið hunsaði kvörtun stjórnarmanna TM vegna málsins.

Óskar Magnússon var forstjóri TM frá árinu 2004 og lét af störfum seint í hittiðfyrra. Á meðan Óskar stýrði félaginu og Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, aðstoðarmaður Guðbjargar Matthíasdóttur þá stærsta eiganda TM, var stjórnarformaður fór fram mikil valdabarátta um yfirráð í félaginu. Vorið 2006 voru stærstu hluthafar félagsins Kristinn ehf, í eigu Guðbjargar og félög tengd fjárfestingarfélaginu Sundi. Aðrir smærri hluthafar voru tengdir Guðbjörgu, s.s. félög í eigu Geirs Zöega og fjölskyldu og Gunnlaugur Sævar sjálfur.

Sund sem átti um 38% hlut vildi stækka við sig vorið 2006. Þá ákvað Gunnlaugur Sævar að efna kaupréttarsamning við Óskar sem á sama tíma veitti stærsta útgerðarfélagi landsins, Samherja, sem er í eigu Þorsteins Más Baldvinssonar, lán upp á einn milljarð króna til að kaupa eigin bréf Tryggingarmiðstöðvarinnar. Samherji var þá einn af stærstu viðskiptavinum TM sem aftur átti 10% hlut í útgerðarfélaginu.

Samkvæmt heimildum fréttastofu var lánveitingin aldrei borin undir stjórn félagsins. Þegar hún hvissaðist út tóku nokkrir stjórnarmenn sig til og sendu kvörtun til Fjármálaeftirlitsins. Liður í þeirri kvörtun var umrætt lán til Samherja en þeir lögfræðingar sem fréttastofa hefur rætt við í dag segja lánið hafa verið ólöglegt. Í hlutafélagalögum segir að hlutafélag megi ekki veita lán til að fjármagna kaup á hlutum í félaginu eða móðurfélagi þess. Engin niðurstaða fékkst hins vegar í málið hjá Fjármálaeftirlitinu. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hefur Samherji nú greitt upp lánið.

Óskar, Guðbjörg og Þorsteinn Már eru í dag hluthafar í Þórsmörk sem á Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins. Óskar sagði í samtali við fréttastofu að endurskoðandi hafi gert athugasemd við frágang á lánveitingunni og hefði málið strax verið sett í annan farveg. Þannig hefði hann skilið við málið þegar hann lét af störfum. Hann segir eðlilegt að lánveitingin og salan á eigin bréfum félagsins til Samherja hafi ekki verið borin undir stjórnina. Þá kannast Óskar ekki við að valdabarátta hafi verið um yfirráð félagsins.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×