Innlent

Jónína Rós vill efsta sætið hjá Samfylkingu

Jónína Rós Guðmundsdóttir
Jónína Rós Guðmundsdóttir

Jónína Rós Guðmundsdóttir, framhalsskólakennari og formaður bæjarráðs Fljótsdalshéraðs, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. - 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jónínu en þar segist hún bjóða fram krafta sína og þor við að endurreisa íslenskt samfélag. Hún segist leggja sérstaka áherslu á nýsköpun í atvinnulífi, velferð fjölskyldna og skiljanlega umfjöllun um pólitík.

„Byggðamál eru mér hugleikin. Fjölbreytt menntunarframboð um allt land, samgöngur og fjarskipti eru þar mikilvægustu málaflokkarnir. Margbreytileg reynsla úr nærsamfélaginu mun nýtast mér vel í eftirfylgni við mín baráttumál." segir Jónína Rós.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×