Íslenski boltinn

ÍR af botninum

ÍR lyfti sér í kvöld af botninum í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu þegar liðið lagði Þór/KA 3-0 í uppgjöri botnliðanna í deildinni. Ana Gomes kom ÍR á bragðið á heimavelli með marki á 9. mínútu, Bryndís Jóhannesdóttir kom liðinu í 2-0 úr víti skömmu fyrir leikhlé og innsiglaði svo sigurinn með öðru marki sínu í síðari hálfleik.

ÍR hefur því hlotið fjögur stig í deildinni en Þór/KA og Fylkir eru á botninum með þrjú stig hvort. Síðar í kvöld taka Blikastúlkur á móti Fjölni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×