Viðskipti innlent

KB banki tvöfaldast

KB banki tvöfaldaði stærð sína í dag með kaupum á danska bankanum FIH fyrir áttatíu og fjóra milljarða króna. Tveir íslenskir viðskiptabankar tóku þátt í slagnum um bankann sem er talinn hafa forystu í lánveitingum til fyrirtækja í Danmörku. Kaupin voru kynnt á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í dag. KB banki kaupir danska bankann FIH af Swedbank á 84 milljarða króna, auk vaxta frá þrítugasta og fyrsta mars þar til gengið verður endanlega frá kaupunum. Hlutabréf í KBbanka hækkuðu um rúm tólf prósent eftir að kaupin voru tilkynnt. Sigurður Einarsson stjórnarformaður KBbanka segir kaupin fjármögnuð með töluvert háu víkjandi láni á erlendum markaði og að til standi að fara í hlutafjárútboð á næstunni. FIH er með sautján prósenta hlutdeild á danska fyrirtækjalánamarkaðnum en stjórnendur KB banka sjá ýmis tækifæri til vaxtar svo sem í fyrirtækjaráðgjöf, fjármögnun í tengslum við yfirtökur og fjárfestingar í óskráðum hlutafélögum. Ekki eru fyrirhugaðar meiriháttar breytingar á rekstri eða starfsmannahaldi. Heimildir fréttastofu herma að Landsbankinn hafi einnig sóst eftir að kaupa FIH, en að þar á bæ hafi menn talið verðið komið yfir sársaukamörk. Hvað sem því líður verður að teljast til tíðinda að tveir viðskiptabankar á litla Íslandi gerist svo metnaðarfullir að hella sér í slaginn um eftirsóttan banka í okkar gamla herraríki. Sigurður Einarsson stjórnarformaður KB banka segir FIH einn af þremur leiðandi fyrirtækjabönkum Danmerkur. "Bankinn er mjög vel rekinn og þess vegna þarf ekki að gera neinar aðgerðir. Við getum unnið með núverandi starfsmönnum FIH og því fellur þetta vel að þeirri hugmyndafræði sem Kaupþing byggir á," segir Sigurður.




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×