Viðskipti erlent

Fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan í Grikklandi í 41 ár

Atli Ísleifsson skrifar
Gríska kauphöllin opnar ekki í dag og þá verða bankar í Grikklandi lokaðir alla þessa viku.
Gríska kauphöllin opnar ekki í dag og þá verða bankar í Grikklandi lokaðir alla þessa viku. Vísir/EPA
Þjóðaratkvæðagreiðslan sem fyrirhuguð er í Grikklandi sunnudaginn þann 5. júlí er sú fyrsta í landinu í 41 ár. Grikkir munu þá skera úr um hvort stjórnvöldum beri að samþykkja lánapakka Evrópusambandsins.

Að sögn forsætisráðherrans Alexis Tsipras voru tillögur ESB svo slæmar fyrir Grikki að hann telur ríkisstjórn hans og Syriza-flokkinn ekki hafa umboð til að samþykkja þær fyrir hönd grísku þjóðarinnar.

Syriza vann sigur í grísku þingskosningunum á síðasta ári, meðal annars vegna loforða um að skera ekki niður lífeyrisgreiðslur.

Bankar lokaðir

Gríska kauphöllin opnar ekki í dag og þá verða bankar í Grikklandi lokaðir alla þessa viku. Gríska ríkisstjórnin tók þá ákvörðun í kjölfar þess að Seðlabanki Evrópu ákvað að lengja ekki í línu neyðaraðstoðar til handa bönkunum svo þeir gætu haldið starfsemi sinni áfram.

Í frétt norska ríkisútvarpsins kemur fram að tillögur ESB innihaldi flókinn texta sem enn hafi ekki verið þýddur á grísku. Þar að auki lauk aldrei viðræðum þar sem þær stöðvuðust í raun þegar Tsipras boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Enn liggur ekki fyrir hvernig til standi að orða spurninguna sem lögð verður fyrir gríska kjósendur.

Þjóðaratkvæðagreiðsla síðast árið 1974

Síðasta þjóðaratkvæðagreiðslan sem fór fram í Grikklandi var árið 1974 þegar ákveðið var að afnema gríska konungsveldið.

Sérfræðingar og grískir kjósendur vilja margir meina að smáatriðin og tæknilegar greiðargerðir í tillögu ESB séu atriði sem venjulegir Grikkir séu ekki í aðstöðu til að taka afstöðu til. Í reynd snúist því atkvæðagreiðslan um hvort Grikkir vilji áfram vera hluti af evrusamstarfinu eður ei.

Gríska þingið greiddi atkvæði með því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um næstu helgi. Stjórnarandstöðuflokkar Jafnaðarmanna og Íhaldsmanna greiddu báðir atkvæði gegn tillögunni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×