Viðskipti innlent

Fyrrverandi sendiherra fær ekki svör frá Seðlabanka vegna fjárfestingar í CRI

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Metanólverksmiðja Carbon Recycling International í Svartsengi við Grindavík. Þar er metanól framleitt með endurvinnslu á koltvísýringsútblæstri og raforku.
Metanólverksmiðja Carbon Recycling International í Svartsengi við Grindavík. Þar er metanól framleitt með endurvinnslu á koltvísýringsútblæstri og raforku.
Fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi getur ekki fjárfest í sprotafyrirtækinu Carbon Recycling International hér á landi því hann fær ekki leyfi Seðlabankans vegna gjaldeyrishaftanna. Sendiherrann er með háar fjárfæðir fastar í skuldabréfum í íslenskum krónum hér á landi.

Um er að ræða Charles E. Cobb sem var sendiherra hér á landi frá 1989-1991. Sem útlendur eigandi krónueigna á Íslandi þarf hann heimild Seðlabankans til að skipta þeim í gjaldeyri eða færa þær milli fjárfestingarflokka.

Cobb hefur áhuga á því að fjárfesta í íslenska sprotafyrirtækinu Carbon Recycling International og færa eign sína úr íslenskum ríkisskuldabréfum til að fjármagna kaupin á hlutabréfum í fyrirtækinu.

Vegna gjaldeyrishaftanna og reglna sem settar vor með stoð í lögum um gjaldeyrismál þarf sendiherrann fyrrverandi að fá heimild Seðlabankans til að selja skuldabréfin og nota andvirðið í fjárfestingu í Carbon Recycling. Vandamálið er að Seðlabanki Íslands hefur ekki svarað erindi sendiherrans fyrrverandi, samkvæmt upplýsingum fréttastofu, þrátt fyrir að heilt ár sé liðið frá því erindið var sent.

Þetta varð til þess að Charles E. Cobb ákvað að rita Bjarna Benediktssyni fjármála- og efnahagsráðherra bréf þar sem hann kvartar undan seinagangi við meðferð umsóknar sinnar hjá Seðlabankanum og óskar eftir skýringum á því hvers vegna svör hafi ekki borist í heilt ár, samkvæmt heimildum Stöðvar 2. 

Cobb undrast seinaganginn því hann hefur engan hug á skipta krónueignum sínum í gjaldeyri. Hann vill bara nota þær til að styðja við upprennandi sprotafyrirtæki á Íslandi og taka þátt í uppbyggingu íslensks atvinnulífs. 

Sindri Sindrason stjórnarformaður Carbon Recycling segist ekki geta tjáð sig um einstök mál en segir að það hafi gerst oftar en einu sinni að útlendingar sem eigi krónueignir hér á landi hafi ekki getað fjárfest í fyrirtækinu fyrir þær þar sem ekki hafi fengist heimild frá Seðlabanka Íslands. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×