Innlent

Funda fram á kvöld

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kennaraverkfall gæti hafist á morgun.
Kennaraverkfall gæti hafist á morgun. VISIR/HRÖNN
Samninganefndir Félags framhaldsskólakennara, Félags stjórnenda í framhaldsskólum og samninganefnd ríkisins hafa fundað alla helgina í þeirri von um að ná fram samningum, ef það tekst ekki mun kennaraverkfall hefjast í fyrramálið.

Fundur sem hófst um hálf sjö leytið í gærkvöldi lauk um þremur tímum síðar. Náist ekki að semja um kjör í dag verður ekki kennt í framhaldsskólum landsins á morgun og því er mikilvægt að jákvæð niðurstaða náist á fundinum.

Mikill munur er á milli krafna kennara um kjör og því tilboði sem ríkið hefur sett fram en kennarar óska eftir 16-17 prósent hækkun á meðan ríkið hefur boðið um þrjú prósent hækkun til eins árs.

Nú klukkan 17 hófst fundur í Kennarahúsinu þar sem samninganefnd framhaldsskólakennara gerir grein fyrir stöðunni.

Að þeim fundi loknum verður haldið aftur í húsnæði ríkissáttasemjara og fundað fram á kvöld.




Tengdar fréttir

Nýta tímann í ræktinni og við bókalestur

Síðasti kennsludagur í framhaldsskólum landsins var í dag ef ekki nást samningar í kjaradeilu framhaldsskólakennara yfir helgina. Sumir nemendur hyggjast nýta verkfallið í ræktina á meðan aðrir ætla að sitja yfir námsbókunum, eins og fram kom í spjalli við nokkra menntaskólanema fyrr í dag.

Á að stytta stúdentsprófið?

Nú er slétt vika þar til verkfall framhaldsskólakennara brestur á, nema samið verði á næstu dögum, og Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra hefur sagt með beinum og óbeinum hætti að ef stúdentsprófið verði stytt úr fjórum árum í þrjú þá skapist svigrúm til að hækka laun kennara umfram aðrar stéttir.

Framhaldsskólanemar halda partí vegna verkfalls

"Við viljum bara dreifa huga samnemenda okkar vegna verkfallsins,“ segir Hilmar Jökull Stefánsson, framhaldsskólanemi. "En við erum ekki að fagna verkfallinu, alls ekki.“

Skilja og styðja baráttu framhaldsskólakennara

Menntaskólanemar sem blaðamaður hitti í dag hafa áhyggjur af verkfallinu og það virðist leggjast illa í nemendur. Flest voru þau sammála um að smá frí frá skólanum væri kærkomið, þau vonast þó til þess að verkfallið standi ekki lengi.

Betri jafnréttisumræðu

Umræða um jafnrétti gæti verið betri á margan hátt. Mikið er um alhæfingar og oft fara samræður langt út fyrir efnið og snúast upp í algjöra steypu. Síðustu áratugi hafa jafnréttissinnar, femínistar og konur náð miklum árangri. Konur og karlar eru að formi til jöfn á flestum ef ekki öllum sviðum samfélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×