Erlent

Forsætisráðherra Malasíu hrósað í hástert

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Forsætisráðherra Malasíu, Datuk Seri Najib Tun Razak.
Forsætisráðherra Malasíu, Datuk Seri Najib Tun Razak. VÍSIR/AFP
Forsætisráðherra Malasíu, Datuk Seri Najib Tun Razak, er hlaðinn lofi í bandaríska tímaritinu The New York Times fyrir einstaklega „hljóðláta“ og hófsama nálgun í erindrekstri sínum í kjölfar árásarinnar á flug MH17 í liðinni viku.

Þar segir leiðarahöfundurinn meðal annars það vera virðingarvert fyrir mann í hans stöðu að taka ekki undir málflutning margra vestrænna leiðtoga sem úthúðuðu Rússum og bandamönnum þeirra eftir hrapið. Þess í stað hafi hann haft yfirvegun að leiðarljósi í öllum samskiptum sínum við erlenda ráðamenn, sem hafi virkað þegar öllu var á botninn hvolft.

Það hafi til að mynda verið með samningum ríkisstjórnar hans við uppreisnarmenn sem ákveðið hafi verið að flytja lík hinna föllnu með lest til Kharkiv, borgar þar sem stjórnvöld í Kænugarði hafa tögl og haldir. Sex malasískir eftirlitsmenn hafi að auki fengið að fylgjast með flutningunum.

Samkomulagið kvað einnig á um að líkunum yrði því næst flogið til Hollands til frekari greiningar. Ef að allir aðilar halda sig við samkomulagið megi líta á framgöngu Najibs sem stórkostlegan diplómatískan sigur.

„Najib hefur látið hafa eftir sér á undanförnum dögum að hann hafi oft langað að vera beinskeittari í málefnum Úkraínu, „en að stundum þurfi að vinna af rósemd til að öðlast megi farsælli niðurstöðu,“ segir meðal annars í New York Times.

Forsætisráðherrann lagði grunninn að samkomulaginu í símtölum við einn foringja uppreisnarmannanna, Alexander Borodai, en hávær krafa var meðal Malasa um að Najib kvæði harðar að orði um framgöngu liðsmanna Borodais eftir hrap vélar Malaysia Airlines.

Það hafi forsætisráðherrann hins vegar látið ógert og er það talin ein af meginástæðunum fyrir því að uppreisnarmennirnir, sem ráða lögum og lofum á landsvæðinu þar sem flak MH17 lenti, hafi ákveðið að semja við malasísk yfirvöld frekar en einhver þeirra fjölmörgu sem ásökuðu þá um að hafa grandað vélinni.


Tengdar fréttir

Ron Paul tekur upp hanskann fyrir Rússa

Þingmaðurinn fyrrverandi, sem sóttist eftir því að verða forseta Bandaríkjanna árið 2012, sakar leiðtoga hins vestræna heims og fjölmiðla um að dreifa grímulausum áróðri um hrap flugvélar Malaysia Airlines.

Tæknilega fullkomið Buk-eldflaugakerfi grandaði MH17

Flókið og tæknilega fullkomið Buk-eldflaugakerfi var notað til að granda MH17 vél Malaysian Airlines. Úkraínsk stjórnvöld saka rússneska aðskilnaðarsinna um að hafa fjarlægt mikilvæg sönnunargögn á staðnum þar sem vélin var skotin niður með þeim afleiðingum að allir um borð fórust.

Aðskilnaðarsinnar ganga rétt frá líkum

Aðskilnaðarsinnar í Úkraínu fylgja eftirlitsmönnum ÖSE hvert fótmál um svæðið þar sem brak úr MH17 lenti. Starfsmaður ÖSE segist þó hvergi banginn.

Úkraínumenn bjóða Hollendingum að stjórna rannsókn

Í dag eru fjórir sólarhringar liðnir frá því flugvél Malaysian flugfélagsins var skotin niður án þess að formleg rannsókna hafi farið fram. Uppreisnarmenn meina rannsakendum fullan aðgang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×