Innlent

Formaður SA segir aukin fjárútlát samkvæmt fjárlögum vonbrigði

Hjörtur Hjartarson skrifar
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins, segir vonbrigði að nýtt fjárlagafrumvarp boði aukin fjárútlát hjá ríkinu.
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins, segir vonbrigði að nýtt fjárlagafrumvarp boði aukin fjárútlát hjá ríkinu. Vísir/GVA/GVA
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins, segir vonbrigði að nýtt fjárlagafrumvarp boði aukin fjárútlát hjá ríkinu. Niðurgreiðsla skulda ríkisins sé mikilvægasta velferðarmál þjóðarinnar.

Þorsteinn var gestur á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem nýtt fjárlagafrumvarp var meðal annars til umræðu. Þorsteinn sagði margt jákvætt í frumvarpi ríkisstjórnarinnar en eitt og annað mætti setja út á.

„Það sem veldur okkur mestum vonbrigðum er skortur á aðhaldi í frumvarpinu,“ segir Þorsteinn. „Við sjáum það að heildarútgjöld eru byrjuð að aukast aftur, það er tæplega þrjátíu milljarða króna aukning á milli ára. Við óttumst þetta, því niðurgreiðsla skulda ríkisjóðs eftir efnahagshrunið er eitt brýnasta velferðarmálið í dag.“

Þorsteinn segist sáttur með boðar breytingar á skattkerfinu og ekki sé rétt að tala um að verið sé að færa byrðarnar af þeim tekjuhærri og á þá tekjulægri.

„Ég held að það sé mikilvægt að það komi fram að ríkisstjórnin sem kom auðlegðarskattinum á ætlaði honum alltaf að vera tímabundinn,“ segir Þorsteinn. „Þannig að það er í sjálfu sér ekki verið að gera annað en að leyfa þeim áformum að verða að veruleika.“

Viðtalið við Þorstein í heild sinni má heyra í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Bjarni segir vinstrimenn ekki skynja skattalækkanir

Fjármálaráðherra segir þingmenn stjórnarandstöðunnar ekki trúa því að hægt sé að lækka skatta. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar talar um stærstu skattahækkun eftir hrun.

Lægra þrep virðisaukaskatts hækkar upp í tólf prósent

Fjármálaráðherra kynnti breytingar á virðisaukaskattskerfinu samhliða nýjum fjárlögum. Efra þrepið lækkar niður í 24 prósent og hefur aldrei verið lægra. Verð á mat ætti að hækka en verð á stórum raftækjum ætti að lækka.

Gagnrýnir skattabreytingar: Bækur dýrari en flatskjáir ódýrari

Andri Snær Magnason rithöfundur gagnrýndir virðisaukaskattsbreytingar sem fjármálaráðherra kynnti í gær. Bækur hækka væntanlega í verði en flatskjáir lækka í verði. Bókaútgefundur og rithöfundar eru uggandi yfir stöðu lesturs á Íslandi.

Orð Sigmundar og Bjarna um virðisaukaskatt rifjuð upp

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði að hækkun virðisaukaskatts á matvæli væri aðför að láglaunafólki fyrir þremur árum. Bjarni Benediktsson sagði fyrir fimm árum að skattkerfið á Íslandi yrði sífellt líkara því sem gerist á Norðurlöndunum. Nái fyrirhugaðar breytingar á virðisaukaskattskerfinu fram að ganga verður skattaumhverfið hér á landi enn líkara því sem gerist í Skandinavíu.

Matarskattur mun hækka um fimm prósentustig á næsta ári

Neðra þrep virðisaukaskatts hækkar úr sjö prósentum í tólf prósent á næsta ári, samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem dreift var á Alþingi í gær. Efra þrep mun lækka úr 25,5 prósentum í 24 prósent. Áætlað er að barnabætur hækki en skerðingarhlutfall aukist

Enn meira aðhalds krafist í fjárlagafrumvarpi næsta árs

Framlög til vegamála munu einungis aukast um einn milljarð á næsta ári, en ekki þrjá eins og gert hafði verið ráð fyrir. Hagræðingar er krafist hjá Vinnumálastofnun, umboðsmanni skuldara og skattrannsóknarstjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×