Viðskipti erlent

Forfaðir spendýranna fundinn

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Dýrið er talið hafa verið uppi fyrir 65-100 milljónum ára.
Dýrið er talið hafa verið uppi fyrir 65-100 milljónum ára.
Skepnan sem öll fylgjuspendýr eru komin af, allt frá fílum til manna, er nú loks fundin.

Í flokki fylgjuspendýra eru öll þau spendýr sem hvorki verpa eggjum né bera afkvæmi sín í húðpokum, og eru þau fleiri en fimm þúsund talsins. Maðurinn er þeirra á meðal.

Rannsókn á steingervingum sýnir fram á að þetta litla og loðna dýr, sem talið er að hafi nærst á skordýrum, hafi komið til sögunnar skömmu eftir að risaeðlurnar dóu út, eða fyrir um 65 milljón árum. Sé tekið mið af erfðafræðirannsóknum er jafnvel talinn möguleiki á að tegundin hafi verið uppi fyrir meira en hundrað milljón árum.

Greint er frá þessu í nýjasta tölublaði vísindatímaritsins Science, en vísindamenn um allan heim standa á bak við rannsóknina sem leiðir niðurstöðurnar í ljós.

Vísindamennirnir bjuggu til stóran gagnagrunn með upplýsingum um 86 mismunandi núlifandi dýrategundir og steingervinga fjörutíu útdauðra tegunda, ásamt um tólf þúsund ljósmyndum og hinum ýmsu genaupplýsingum.

Unnið var úr upplýsingunum með hugbúnaði sem kallast Morphobank, en hann gerir vísindamönnum um allan heim að starfa saman líkt og þeir væri staddir á sömu tilraunastofu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×