Viðskipti innlent

FME kannar hvernig gögn láku til fjölmiðla

Fjármálaeftirlitið harmar að gögn með ítarlegum upplýsingum um viðskiptavini bankanna hafi birst opinberlega. Fjármálaeftirltið skoðar nú hvort í birtingunni felist brot á 58. grein laga 161/2002, eða lög um bankaleynd. Með þessari yfirlýsingu bregst Fjármálaeftirlitið við birtingu Víglundar Þorsteinssonar á gögnum sem varða flutning á eignum gömlu bankanna yfir í nýju bankanna.

Víglundur sendi afrit af gögnunum á fjölmiðla seint á fimmtudagskvöld í síðustu viku. Sakaði hann þáverandi fjármálaráðherra, Steingrím J. Sigfússon, um lögbrot þegar bönkunum var skipt upp. Telur Víglundur að skilanefndir/slitastjórnir gömlu bankanna hafi hagnast um 3-400 milljarða af þessu. 

Fjármálaeftirlitið hafnar ásökunum í málflutningi Víglundar. Segir á vef Fjármálaeftirlitsins að í samræmi við upphaflega ákvörðun Fjármálaeftirlitsins hafi við bráðabirgðamat eigna verið reiknað með áætlaðri virðisrýrnun. Aðeins stærri lán voru metin sérstaklega en önnur lán voru metin sem hluti af stærri einsleitum útlánasöfnum. Fjármálaeftirlitið mælti ekki fyrir um að kröfuvirði viðkomandi lána yrði fært niður sem næmi væntri virðisrýrnun, heldur aðeins að samsvarandi fjárhæð yrði færð á afskriftareikning til frádráttar til að mæta væntum útlánatöpum.

„Því er ranglega haldið fram að Fjármálaeftirlitið hafi með stofnúrskurði mælt fyrir um afskriftir á einstökum lánum. Eins og áður greinir tók Fjármálaeftirlitið ákvarðanir um hvaða eignir og skuldir færu yfir til nýju bankanna og eftir hvaða ferli skyldi meta virði þeirra. Þau fylgiskjöl sem nú hafa birst opinberlega, drög að stofnefnahagsreikningum bankanna þriggja frá í október 2008, höfðu þann eina tilgang að leiða fram gróft mat á efnahag bankanna við upphaf reksturs þeirra, stöðu sem fyrirfram var vitað að tæki breytingum á grundvelli áðurnefnds matsferlis,“ segir í frétt á vef FME. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×