Innlent

Flokkarnir hafa ekki svarað kallinu um siðbót

Baldur er prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Þess ber að geta að hann var í framboði fyrir Samfylkinguna í þingkosningunum í apríl á síðasta ári.
Baldur er prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Þess ber að geta að hann var í framboði fyrir Samfylkinguna í þingkosningunum í apríl á síðasta ári. Mynd/Heiða Helgadóttir

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að nýlegar skoðanakannanir sýni að stjórnmálaflokkarnir hafi ekki svarað kalli almennings um siðbót. Margir upplifi að sami rassinn sé undir öllum stjórnmálamönnum þó það sé ekki raunin, að mati Baldurs.

„Það hefur líka skort á það að flokkarnir taki til hjá sér, bæði eftir hrunið og eftir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Því finnst mér að flokkarnir hafi ekki svarað kallinu hvað siðbót varðar," segir Baldur í viðtali sem birtist í kosningablaði Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík og kom formlega út í dag.

„Ef það gerist ekki þá mun þessi gríðarlega óánægjualda vera áfram til staðar, því það kraumar allt undirniðri í samfélaginu. Ég tel að á Alþingi sé verið að vinna mjög gott starf á mörgum sviðum, en ef að forysta stjórnmálaflokkanna lætur þá þingmenn ekki axla ábyrgð, sem algjörlega eru rúnir traustir, þá munu þessi góðu verk einfaldlega falla í skuggann af þeim aðilum. Það hefur valdið mér vonbrigðum að það hafi ekki verið tekið á þessum málum innan flokkanna," segir Baldur og vísar til Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

Hefur skemmtigildi til skamms tíma

Baldur segir ekki rétt að bera Borgarahreyfinguna og Besta flokkinn saman. Borgarahreyfingin hafi verið og væri alvöru stjórnmálaafl sem spratt upp úr mótmælunum í kjölfar bankahrunsins og vildi koma á róttækum breytingum.

„Besti flokkurinn hefur skemmtigildi til skamms tíma, en í rauninni er hann grafalvarlegt mál sem mér finnst stjórnmálamenn ekki taka almennilega á. Það mikla fylgi sem hann fær í skoðanakönnunum endurspeglar fyrst og fremst þá miklu óánægju sem ríkir í garð stjórnmálamanna og hvað þeir njóta lítils trausts," segir Baldur í viðtalinu sem hægt er að lesa hér.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×