Viðskipti innlent

Fleiri sækja réttinn til húsaleigubóta

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Formaður Félags leigumiðlara segir litla hreyfingu hjá leigumiðlurum enda fari margar íbúðir í leigu til ferðamanna og enn séu margir sem gefi ekki upp leiguna.
Formaður Félags leigumiðlara segir litla hreyfingu hjá leigumiðlurum enda fari margar íbúðir í leigu til ferðamanna og enn séu margir sem gefi ekki upp leiguna. vísir/vilhelm
Um sex hundruð fleiri fengu húsaleigubætur í Reykjavík á fyrstu sex mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra og hefur kostnaður vegna bótanna hækkað um tæp fimmtán prósent.

Ellý Alda Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri Velferðarsviðs Reykjavíkur, segir fjölgunina fyrst og fremst vera á almennum markaði og námsmannaíbúðum. 

Ellý Alda Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
Aðspurð segist hún ekki vita með fullri vissu hver ástæða fjölgunarinnar er, en þar sem framboð leiguhúsnæðis hefur ekki aukist sé fjölgunin líklega tengd efnahagsástandinu.

„En með hliðsjón af þeim efnahagsþrengingum sem þjóðin hefur gengið í gegnum er ekki órökrétt að áætla að fleiri eigi rétt á bótum en áður vegna lægri tekna,“ segir Ellý Alda. 

Hólmsteinn Brekkan, framkvæmdastjóri Samtaka leigjenda, segir líklega ástæðu fjölgunar vera að fleiri séu upplýstir um réttindi sín. 

Hólmsteinn Brekkan, framkvæmdastjóri Samtaka leigjenda
„Við höfum hamrað á þessu við leigjendur því það eru svo margir sem hafa ekki hugmynd um bótaréttinn. Mikið af eldra fólki í þjónustuíbúðum sem við höfum talað við hefur til dæmis ekki haft hugmynd um hvað húsaleigubætur eru.“

Hólmsteinn segir fólk stóla meira á bæturnar með hækkandi leiguverði og þrýsta því meira nú en áður á leigusala að gefa leiguna upp. 

Svanur Guðmundsson, formaður Félags leigumiðlara
Svanur Guðmundsson, formaður Félags leigumiðlara, tekur undir það og bætir við að leigjendur séu orðnir mun meðvitaðri um rétt sinn.

„Ég veit af fjölmörgum dæmum þar sem leigjendur fara með samning í þinglýsingu og sækja svo um bætur, þrátt fyrir munnlegt samkomulag við leigusala um að gefa ekki upp leiguna,“ segir Svanur. „Enda á ekkert að þurfa að spyrja eigandann hvort það megi þinglýsa samningnum. Það munar svo miklu fyrir fjölskyldur að fá bæturnar og leigusalar geta lítið gert við þessu, annað en að segja leigusamningnum upp, sem gerist stundum.“ 

Svanur segir þó einnig mörg dæmi þess að leigusalar vilji ekki leigja út íbúðir sínar til þeirra sem ætla að sækja um bætur, sem þýðir að erfiðara getur verið fyrir þá verst stöddu að fá íbúðir til leigu. „Og vegna svo mikillar eftirspurnar eftir leiguíbúðum hafa leigusalar mikil völd.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×