Erlent

Fleiri rafmagnshleðslustöðvar í Japan en bensínstöðvar

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Stjórnvöld í Japan leggja mikla áherslu á að draga úr notkun bensínbíla.
Stjórnvöld í Japan leggja mikla áherslu á að draga úr notkun bensínbíla. Vísir/Getty
Nú eru fleiri hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla í Japan en bensínstöðvar. Notkun rafmagnsbíla hefur verið sívaxandi í landinu og hefur metnaður stjórnvalda verið slíkur að rúmlega 40 þúsund hleðslustöðvar hafa verið settar upp. Bara í síðasta mánuði voru opnaðar tæplega 3000 nýjar stöðvar. Flestar eru opnar almenningi en nokkrar munu vera í einkaeigu. Bensínstöðvar í landinu eru rúmlega 34 þúsund talsins.

Enn eru töluvert fleiri bensínbílar í notkun í Japan en rafmagns- eða vetnisbílar en búist er við því að það muni breytast all verulega á næstu árum.

Lesa má ítarlega grein um málið á vef Transporterevolved.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×