Viðskipti erlent

Fleiri ræða um tækifæri vegna loftlagsbreytinga

Kristján Már Unnarsson skrifar
Skemmtiferðaskipið Costa Pacifica á Ísafjarðardjúpi.
Skemmtiferðaskipið Costa Pacifica á Ísafjarðardjúpi. Mynd/Bæjarins besta.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra er ekki einn um það að benda á að loftlagsbreytingar skapi ný tækifæri á Norðurslóðum. Norski vefmiðillinn Barentsobserver, sem gefinn er út af Barentsskrifstofunni í Kirkenes, en hún heyrir undir norska utanríkisráðuneytið, birti í vikunni grein þar sem segir í fyrirsögn að hlýrri Norðurslóðir gætu örvað siglingar skemmtiferðaskipa.

Fram kemur að hafnaryfirvöld í Múrmansk eru að endurbæta aðstöðu fyrir skemmtiferðaskip til að mæta væntanlegri aukningu í siglingum með ferðamenn um Íshafið. Fjölgun skemmtiferðaskipa sé eitt af markmiðum rússneskra stjórnvalda með stofnun Norðurslóðaþjóðgarðs sem nái yfir eyjarnar Franz Josef Land og Novaya Zemlya. Þau vilji sjá ferðamennsku á rússnesku heimskautaeyjunum þróast eins og á Svalbarða hjá Norðmönnum. 

Í greininni er reyndar tekið fram að það sé goðsögn að siglingar skemmtiferðaskipa hafi stóraukist vegna bráðnunar hafíss. Vefmiðillinn vísar til talna sem sýna að á undanförnum níu árum hafi nær engin aukning orðið í fjölda ferðamanna á skemmtiferðaskipum til heimskautasvæða á Grænlandi, Rússlandi né í Kanada. Það sé aðeins til Svalbarða sem aukning hafi orðið. 

Vitnað er til þess að loftlagsnefnd Sameinuðu þjóðanna hafi bent á hættu sem auknar siglingar skemmtiferðaskipa um Norðurslóðir gætu skapað. Samtök fyrirtækja sem bjóða upp á heimskautasiglingar benda hins vegar á að ranghugmyndir um raunverulegan fjölda ferðamanna gætu bæði skapað of miklar væntingar um viðskiptatækifæri en einnig ýkt hættuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×