Viðskipti erlent

Fjárfesting í skrifstofuhúsnæði í London ekki minni í fimm ár

Sæunn Gísladóttir skrifar
Fjárfestar eru varir um sig vegna mögulegrar útkomu kosninga um viðveru Breta í ESB.
Fjárfestar eru varir um sig vegna mögulegrar útkomu kosninga um viðveru Breta í ESB.
Fjárfesting í skrifstofuhúsnæði í miðborg London hefur ekki verið minni í fimm ár. Á fyrsta ársfjórðungi 2016 dró verulega úr fjárfestingu þar sem fjárfestar óttast áhrif kosninga um viðveru í Breta í Evrópusambandinu sem mun fara fram í júní. 

Fjárfesting á fyrstu þremur mánuðum ársins lækkaði um 31 prósent miðað við tíu ára meðaltal og nam 2,2 milljörðum punda, jafnvirði 400 milljarða íslenskra króna. Fjárfesting dróst saman um helming samanborið við ársfjórðunginn á undan. Tilkynnt var um dagsetningu kosninganna í febrúar síðastliðnum.

Svipuð þróun átti sér stað árið 2014 þegar kosið var um sjálfstæði Skotlands, fjárfestar virðast því vera varir um sig þegar þeir standa frammi fyrir óvissu. Mörg alþjóðleg fyrirtæki hafa nú þegar lýst því yfir að þau munu yfirgefa London ef Bretland yfirgefur Evrópusambandið. Forsvarsmenn HSBC bankans bentu til að mynd á að auðvelt væri fyrir þá að reka skrifstofur í París.


Tengdar fréttir

Obama hvetur Breta til að yfirgefa ekki ESB

Barack Obama Bandaríkjaforseti kom í opinbera heimsókn til Bretlands í morgun og var varla lentur þegar hann var búinn að hrista verulega upp í deilunni um það hvort Bretar eigi að vera áfram í ESB eður ei. Obama skrifaði grein í Daily Telegraph sem birtist í morgun þar sem hann fer yfir málefni líðandi stundar og samskipti Breta og Bandaríkjamanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×