Innlent

Fatlaðri konu meinaður aðgangur að American bar: „Svona framkoma er engan veginn í lagi“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ágústa vill sjá breytingar í samfélaginu.
Ágústa vill sjá breytingar í samfélaginu.
„Auðvitað hvarflaði það að mér að mér hefði ekki verið hleypt inn vegna fötlunar minnar. Eða af því að ég er kannski of þung. Sama hver skýringin er þá réttlætir hún ekki að einhver ákveðinn samfélagshópur sé útilokaður frá ákveðnum skemmtistað,“ segir Ágústa Arna Sigurdórsdóttir. Ágústa lenti í þeirri leiðinlegu reynslu á laugardagskvöld að vera meinaður aðgangur að skemmtistað án útskýringa.

Hún skrifaði færslu á Facebook um atvikið og segir í samtali við Vísi að hún hafi sagt sögu sína í von um að breytingar verði í samfélaginu.

Atvikinu lýsir Ágústa þannig að hún hafi verið að skemmta sér í bænum á laugardaginn og um hálf fjögur leytið ákveðið að kíkja á American bar þar sem vinkonur hennar voru fyrir. Þar sem hún stóð í röðinni fyrir utan koma strákar sem hún kannast við en þegar kemur að því að hleypa inn á staðinn er strákunum hleypt inn en ekki Ágústu. „Sem er sérstakt,“ segir Ágústa í Facebook færslunni. „Fyrir aftan mig eru tveir strákar sem segja við mig að ég geti bara komið inn með þeim. Dyraverðirnir koma aftur og strákarnir benda á mig og segja að ég sé með þeim,“ útskýrir hún. „En nei, strákunum er hleypt inn en ekki mér!“

Aðeins „útvöldum“ hleypt inn

Ágústa segist hafa leitað eftir skýringum á því hvers vegna dyraverðirnir hleypi henni ekki inn en að þá hafi þeir gengið í burtu hljóðalaust. Þegar vinkona hennar spurðist svo fyrir um ástæður þessa framferðis þeirra fengust þau svör að það séu aðeins útvaldir sem fái að koma inn. „Já takk fyrir það!“ 

Hún vill benda á að það sé ekki í lagi að mismuna fólki eftir útliti, kyni eða líkamlegum skerðingum. „Mín fötlun sést á mér og því getur verið að það hafi haft áhrif á ákvörðun dyravarðanna,“ segir hún. „En það breytir því ekki að það hafi verið réttlætanleg ástæða til að hleypa mér ekki inn á staðinn þó ég sé á einhvern hátt öðruvísi en hinir gestirnir. Ég ákvað að benda á þetta því mér finnst þetta ekki í lagi og vona að þetta leiði til einhverja breytinga."

Eigendur skemmtistaðarins, American Bar, höfðu samband við Ágústu í dag til þess að biðja innilegrar afsökunar. „Það sýnir að þeir taka málið alvarlega og vonandi koma svona atvik ekki upp aftur,“ segir Ágústa en margir hafa haft samband við hana í dag og segjast ætla að sniðganga American Bar. „Mitt markmið var ekki að fá fólk til þess að sniðganga American Bar, langt í frá. Ég er eingöngu að benda á það að svona framkoma er engan veginn í lagi og að allir eiga að sitja við sama borð. Hvort það sé þegar kemur að aðgengi að skemmtistöðu eða einhverju öðru. Stundum þarf maður bara að segja frá því þegar hlutirnir eru ekki í lagi.“

Ágústa segist vona allir geti lært af þessu atviki. „Við erum öll mismunandi og það hversu margbreytileg mannlífsflóran er gerir lífið einfaldlega skemmtilegra.“


Tengdar fréttir

Réðst á dyravörð á English pub

Rúmlega fertugur karlmaður var í Hæstarétti Íslands í dag dæmdur í fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á dyravörð á English Pub við Austurstræti 12 í Reykjavík í ágúst 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×