Íslenski boltinn

Fanndís með tæp tvö mörk að meðaltali í síðustu fimm leikjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fanndís Friðriksdóttir í leiknum á móti Þrótti í gær.
Fanndís Friðriksdóttir í leiknum á móti Þrótti í gær. Vísir/Valli
Fanndís Friðriksdóttir skoraði bæði mörk Blika í 2-0 sigri á Þrótti í leik liðanna á Valbjarnarvelli í gær í 10. umferð Pepsi-deildar kvenna.

Fanndís er þar með komin með fjórtán mörk í Pepsi-deild kvenna í sumar og fimm marka forskot á næstu konu í baráttunni um markakóngstitil deildarinnar.

Fanndís byrjaði sumarið vel og skoraði fimm mörk í fyrstu fimm leikjunum eða mark að meðaltali í leik.

Fanndís gerði aftur á móti enn betur í næstu fimm leikjum því hún hefur nú skorað tæp tvö mörk að meðaltali í fimm leikjum Blika frá og með miðjum júní.

Fanndís skoraði samtals níu mörk í sigurleikjum á Val, Selfossi, Þór/KA, ÍBV og Þrótti. Þrír af þessum leikjum hafa verið á útivelli en Fanndís hefur skorað í öllum fimm útileikjum Blika í Pepsi-deild kvenna í sumar.

Fanndís Friðriksdóttir vantar nú "aðeins" tvö mörk til að jafna sitt persónulega met í úrvalsdeildinni sem er frá því fyrir sex árum er hún skoraði 16 mörk í 18 leikjum sumarið 2009.

Fanndís er búin að skora í öllum leikjum Breiðabliks í Pepsi-deild kvenna í sumar nema 1-0 sigrinum í toppslagnum á móti Stjörnunni en þá lagði hún aftur á móti upp sigurmark Telmu Hjaltalín Þrastardóttur.


Tengdar fréttir

Níu mörk á tólf dögum hjá Berglindi

Það er óhætt að segja Berglind Björg Þorvaldsdóttir, framherji Fylkis í Pepsi-deild kvenna, hafi verið sjóðheit upp við mark andstæðinganna í síðustu leikjum.

Breiðablik og Stjarnan að stinga hin liðin af | Myndir

Breiðablik og Stjarnan héldu bæði sigurgöngur sinni áfram í Pepsi-deild kvenna í kvöld og eftir tíu umferðir er nokkuð ljóst að baráttan um Íslandsmeistaratitilinn stendur á milli þessara nágrannaliða.

Toppliðin unnu bæði | Fanndís skorar og skorar

Breiðablik er áfram með fjögurra stiga forskot á Íslandsmeistara Stjörnunnar eftir úrslit kvöldsins í 10. umferð Pepsi-deildar kvenna í fótbolta. Breiðablik sótti þrjú stig á Valbjarnarvöll en Stjarnan vann í Vesturbænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×