Golf

Færðist nær milljarði króna og sæti í Ryder-liðinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hunter Mahan fagnar sigri á Barclays-mótinu í gærkvöldi.
Hunter Mahan fagnar sigri á Barclays-mótinu í gærkvöldi. vísir/getty
Eins og kom fram í gærkvöldi vann Bandaríkjamaðurinn HunterMahan góðan sigur á Barclays-mótinu í golfi í New Jersey í gærkvöldi, en það var jafnframt fyrsta mótið af fjórum í FedEx-bikarnum, úrslitakeppni PGA-mótaraðarinnar.

Mahan spilaði frábærlega á lokahringnum, en hann fékk sjö fugla og einn skolla og spilaði völlinn á 65 höggum eða sex höggum undir pari. Hann endaði á 14 höggum undir pari og vann með tveggja högga mun.

Þetta er fyrsti sigur Mahans á PGA-mótaröðinni í tvö ár og sá sjötti í heildina. Þessi kom á hárréttum tíma, en sigurinn á Barclays-mótinu færði hann nær ríflega einum milljarði króna og mögulega sæti í Ryder-liði Bandaríkjanna.

Barclays-mótið er það fyrsta af fjórum í FedEx-bikarnum og er Mahan nú efstur á stigalistanum í henni með 3,276 stig, 500 stigum á undan RoryMcIlroy.

vísir/getty
Gríðarlega há peningaverðlaun eru í úrslitakeppninni, en sá sem er efstur eftir mótin fjögur; Barclays-mótið, Deutsche Bank-meistaramótið, BMW-meistaramótið og lokamótið, fær 10 milljónir dala í sinn hlut eða 1,2 milljarði króna.

Hvað varðar Ryder-bikarinn þá hefur Mahan ekki verið nálægt þeim níu efstu sem veljast sjálfkrafa í liðið, en hann er nú kominn upp í 25. sæti á stigalista bandaríska liðsins.

Hann hefur heldur ekki verið einn af þeim þremur sem sérfræðingarnir spá að TomWatson, fyrirliði Bandaríkjanna, velji með fyrirliðavalréttinum.

Þeir sem hafa talist líklegastir eru KeeganBradley, Brandt Snedeker, WebbSimpson, HarrisEnglish og RyanMoore. En eftir sigurinn í gærkvöldi íhugar Watson vafalítið að taka Mahan með.

Næsta mót í FedEX-úrslitakeppninni er Deutsche Bank-meistaramótið sem fram fer á TPC Boston-vellinum, en þar hafa aðeins 100 stigahæstu kylfingarnir þátttökurétt. Þeim fækkar svo niður í sjötíu fyrir þriðja mótið og aðeins 30 keppa á lokamótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×