Viðskipti innlent

Facebook með 1,39 milljarða virka notendur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Margir nota Facebook daglega.
Margir nota Facebook daglega. vísir/getty
Hagnaður Facebook á fjórða fjórðungi ársins 2014 námu 701 milljón bandaríkjadala, um 93 milljörðum króna. Það er 34 prósent aukning frá sama tímabili árið áður. Auglýsingatekjur jukust um 53 prósent og námu 3,59 milljörðum dollara, eða um 477 milljörðum króna. Um 70 prósent af því fengust af sölu auglýsinga í farsíma.

Talsmenn fyrirtækisins segja að 1,39 milljarðar manna séu virkir notendur í hverjum mánuði, það er 13 prósent aukning frá því fyrir ári. „Við áorkuðum ýmsum árið 2014, segir Mark Zuckerberg, aðaleigandi fyrirtækisins, í tilkynningu sem BBC vísar til.

Hagnaður fyrirtækisins fyrir árið 2014 í heild nam 2,9 milljörðum dala, um 386 miljörðum króna. Það er næstum tvöföldun frá árinu áður. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×