Viðskipti erlent

Facebook fékk vörumerkið "face book“ bannað í Kína

ingvar haraldsson skrifar
Facebook er bannað í Kína.
Facebook er bannað í Kína.
Dómstóll í Peking dæmdi Facebook í vil gegn kínversku fyrirtæki sem skráð hafði vörumerkið „face book“ að því er fram kemur í frétt BBC.

Dómstólinn taldi nafnið face book brjóta gegn siðferðislegum viðmiðum með það að markmiði að herma eftir þekktu vörumerki.

Fyrirtækið, Zhongshan Pearl River, skráði vörumerkið árið 2014. Facebook er bannað í Kína en fyrirtækið hefur unnið að því að bæta ímynd sína meðal kínverskra stjórnvalda að undanförnu.

Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Facebook, heimsótti Kína nýlega þar sem hann hitti Liu Yunshan, einn af æðstu mönnum kínverska kommúnistaflokksins og Jack Ma, stofnanda Ali Baba.

Í kjölfar dómsins hafa kínverskir fjölmiðlar velt upp hvort afstaða þarlendra yfirvalda gagnvart Facebook sé að mýkjast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×