Golf

Erfiður hringur hjá Valdísi Þóru en fuglinn á sautjándu holunni hjálpað mikið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir
Valdís Þóra Jónsdóttir Mynd/GSÍmyndir
Valdís Þóra Jónsdóttir á enn fína góða möguleika á því að komast í lokaúrtökumótið fyrir LET Evrópumótaröðina.

Skagastelpan er í tólfta sæti fyrir lokadaginn á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina sem fer fram í Marokkó.

30 efstu komast inn á lokaúrtökumótið sem fer fram í næstu viku í Marokkó.

Valdís Þóra átti erfiðan dag og lék á 79 höggum eða sjö höggum yfir pari. Hún þurfti níu fleiri högg í dag en í gær. Valdís Þóra tapaði fjórum höggum strax á fyrstu tveimur holunum en hún lék aðra holuna á sjö höggum eða þremur höggum yfir pari

Frábær annar hringur þar sem Valdís Þóra lék á tveimur höggum undir pari er að hjálpa henni mikið núna en hún er á níu höggum yfir pari samtals.

Valdís Þóra spilaði fyrri níu holurnar á sex höggum yfir pari en gekk mun á seinni níu þar sem hún var á einu höggi yfir pari. Valdís náði fugli á sautjándu holunni og pari á þeirri átjándu sem þýðir að hún er nú með tveggja högga forskot á næstu kylfinga.

Þær sem sitja nú í 30. sætinu hafa leikið þrjá fyrstu dagana á 17 höggum yfir pari eða á átta fleiri höggum en Valdís Þóra.

Svíinn Madelene Sagström er aftur á móti með yfirburðarforystu en hún hefur leikið holurnar 54 á 12 höggum undir pari. Það eru síðan bara þrír kylfingar í viðbót sem eru undir parinu eftir fyrstu þrjár holurnar.


Tengdar fréttir

Valdís Þóra upp um níu sæti

Valdís Þóra Jónsdóttir lék vel á öðrum degi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina í Marokkó.

Tilbúinn að fórna miklu

Ólafur Björn Loftsson spilaði meiddur í tvö ár áður en hann fékk rétta greiningu. Í ljós kom tvenns konar kviðslit og gekkst hann undir aðgerð í síðasta mánuði. Hann stefnir ótrauður á að ná fyrri styrk og byrjar að spila á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×