Viðskipti innlent

Enn stefnt á stórfellda stækkun Kringlunnar

Jon Hákon Halldórsson skrifar
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, telur að þörf sé fyrir meira verslunarhúsnæði og eftirspurn sé stöðugt að færast út fyrir miðborgina.
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, telur að þörf sé fyrir meira verslunarhúsnæði og eftirspurn sé stöðugt að færast út fyrir miðborgina. aðsend mynd
Fasteignafélagið Reitir hyggur á mikla uppbyggingu á Kringlureitnum, en í aðalskipulagi Reykjavíkur er gert ráð fyrir stækkun um 100 þúsund fermetra, auk íbúðarhúsnæðis. Þetta kemur fram í fjárfestakynningu Reita, en hún var rædd á fundi VÍB, eignastýringaþjónustu Íslandsbanka, á morgunfundi á mánudaginn. Gert er ráð fyrir að Kringlan stækki í átt að Kringlumýrarbraut, milli gamla Morgunblaðshússins og Sjóvár. Einnig er gert ráð fyrir byggingu 17-20 hæða turns nær Miklubraut.

Almennt hlutafjárútboð í Reitum hefst í dag og stendur fram á föstudag, þar sem Arion banki býður 13,25 prósenta hlut til sölu. Stærð útboðsins nemur að lágmarki 5,5 milljörðum króna miðað við lágmarksgengi 55,5 krónur á hlut.

Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, sagði fasteignamarkaðinn hafa tekið nokkrum breytingum að undanförnu. Ekki sé lengur um algjöran kaupendamarkað að ræða og þó hann sé ekki orðinn algjör seljendamarkaður sé staðan töluvert betri. Hann sagði þörf fyrir meira verslunarhúsnæði og að eftirspurn sé stöðugt að færast lengra út fyrir miðborg Reykjavíkur. Hreyfing sé komin á húsnæði sem erfitt hefur reynst að selja eða leigja út og áætlað sé að auka nýtingarhlutfall úr 96% í 97%.

Í fjárfestakynningunni kemur fram að Kringlan hefur verið í eignasafni Reita frá upphafi og er verðmætasta eign félagsins. Húsið er um tuttugu prósent af bókfærðu virði eignasafns. Reitir eiga tæplega áttatíu prósent af verslunarrými Kringlunnar en annað rými er í dreifðri eigu. Frumhugmyndir gera ráð fyrir að verslunarmiðstöðin verði stækkuð til vesturs og byggt verði yfir götuna á lóðum númer 1, 3 og 5 við Kringluna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×