Eldstöðvarnar í Kötlu og Vatnajökli verður að vakta vel 14. júlí 2011 19:45
Hlaupin í Vatnajökli í gær og frá Kötlu um síðustu helgi skýrast bæði af eldvirkni og telja jarðvísindamenn ástæðu til að vakta báðar eldstöðvarnar vel. Engin merki sjást um yfirvofandi umbrot. Þegar jarðvísindamenn á vegum almannavarna flugu yfir vestanverðan Vatnajökul í gærkvöldi sáu þeir hvar nýir sigkatlar höfðu myndast á stöðum þar sem ekki var áður vitað um jarðhita. Þarna er nú greinilega mikill hiti undir. Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur á Veðurstofunni, segir að hitinn geti stafað hvort sem er af kvikuhlaupi, eldsumbrotum undir jöklinum eða af því að nýtt jarðhitasvæði hafi myndast. Ef það komi upp nýtt jarðhitasvæði sé hraunbráð venjulega ekki langt undan. Ekki eru liðnir tveir mánuðir frá gosinu í Grímsvötnum. Um síðust helgi virðist Katla hafa bært á sér og nú hafa bæst við hræringar við Hamarinn í Vatnajökli. Margir spyrja eðlilega: Hvað er eiginlega að gerast? Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur á Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, segir að fylgst sé mjög náið með bæði Kötlu og vestanverðum Vatnajökli. Þar geti ýmislegt gerst þó að engin merki séu um að þar sé eitthvað yfirvofandi. Oddur segir að eldvirkni virðist koma í lotum. Á sinni ævi hafi hann upplifað kyrrasta tímabil í íslenskri eldgosasögu í þúsund ár. Núna sé greinileg aukning á eldsumbrotum frá því sem var um miðja 20. öld. Freysteinn segir að menn eigi að vakta vel jarðskorpuna og átta sig á hvaða atburðir geti gerst og vera ekki feimnir við að ræða þá möguleika. Það sé þó engin ástæða til hræðslu.
Tengdar fréttir Allt var með kyrrum kjörum í Kötlu Allt var með kyrrum kjörum í Kötlu í nótt eftir skjálfta þar upp á 2,6 síðdegis í gær. Þó var aðeins órói í Goðabungu, í austanverðum Mýrdalsjökli, en hann er ekki talinn vísbending um neinar frekari hræringar. 14. júlí 2011 08:29 Eldgos gæti hafa brotist upp við Hamarinn Líkur eru taldar á að lítið eldgos hafi orsakað hlaupið undan vestanverðum Vatnajökli í gær, að sögn Odds Sigurðssonar jarðfræðings. Tveir nýir sigkatlar, sem ekki var vitað um áður, komu í ljós í flugi almannavarna yfir svæðið í gærkvöldi. 14. júlí 2011 12:05 Mest lesið „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ Innlent Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Innlent Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð Innlent Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Erlent „Hún er albesti vinur minn“ Innlent Stigmögnunin heldur áfram Erlent Hvað vitum við um Leó páfa? Erlent Einn rólegur, annar afar ósáttur Innlent Gular viðvaranir og hryssingslegt sunnan- og vestantil Veður „Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Innlent Fleiri fréttir Skilríkjalaus og með fíkniefni „Hún er albesti vinur minn“ Loftslagsmál sitji á hakanum vegna stríða og heimsfaraldurs „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ „Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Einn rólegur, annar afar ósáttur Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð „Gott að eldast“ í tuttugu og tveimur sveitarfélögum Uppsagnir á Þjóðminjasafninu Lítil Björg dró stóra Hildi í land Nýr páfi, svik við almenning og loðnasti starfsmaður Rimaskóla Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Þungt hugsi og í áfalli Telja Jón Þór hafa tryllst af afbrýðissemi Viðsnúningur eftir krappan dans Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Rúmir níu milljarðar runnið úr ríkissjóði til flokkanna Ólafur Þór undrandi og dómsmálaráðherra talar um svik við þjóðina Heilsa, vellíðan, friður, réttlæti og jöfnuður mikilvægustu markmiðin Svik við almenning, kerfið og samstarfsfólk Ein breyting á stjórn sem leggja á niður „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Miklum meirihluta finnst auglýsingar SFS slæmar Hafdís hafi bara umlað „hann reyndi að drepa mig“ Annar snarpur skjálfti í Ljósufjallakerfi Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum „Þetta er mál sem varðar ekki einungis kaþólsku kirkjuna“ „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ „Þetta er svona eitraður kokteill” Sjá meira
Allt var með kyrrum kjörum í Kötlu Allt var með kyrrum kjörum í Kötlu í nótt eftir skjálfta þar upp á 2,6 síðdegis í gær. Þó var aðeins órói í Goðabungu, í austanverðum Mýrdalsjökli, en hann er ekki talinn vísbending um neinar frekari hræringar. 14. júlí 2011 08:29
Eldgos gæti hafa brotist upp við Hamarinn Líkur eru taldar á að lítið eldgos hafi orsakað hlaupið undan vestanverðum Vatnajökli í gær, að sögn Odds Sigurðssonar jarðfræðings. Tveir nýir sigkatlar, sem ekki var vitað um áður, komu í ljós í flugi almannavarna yfir svæðið í gærkvöldi. 14. júlí 2011 12:05