Viðskipti erlent

Ekkert samkomulag í Brussel: Hlutabréf lækka í Grikklandi

Atli Ísleifsson skrifar
Yanis Varoufakis, fjármálaráðherra Grikklands, ásamt Jeroen Dijsselbloem, fjármálaráðherra Hollands, sem fer fyrir Evruhópnum.
Yanis Varoufakis, fjármálaráðherra Grikklands, ásamt Jeroen Dijsselbloem, fjármálaráðherra Hollands, sem fer fyrir Evruhópnum. Vísir/AFP
Hlutabréfamarkaðir í Grikklandi hafa fallið um fjögur prósent í dag. Lækkunin er rakin til þess að fjármálaráðherrar evruríkjanna mistókst að ná samkomulagi við grísk stjórnvöld um lánagreiðslur til landsins í gær.

Í frétt BBC segir að grísk stjórnvöld hafi hafnað samningsboði ESB um að endurnýja þegar gerðan samning um 240 milljarða evra lánapakka landsins.

Yanis Varoufakis, fjármálaráðherra Grikklands, lýsti boðinu sem „óásættanlegu“ og „fáránlegu“. Varoufakis lýsti því þó yfir að hann væri reiðubúinn að að gera allt sem til þarf þannig að samkomulag náist. Grikkir væru reiðubúnir að samþykkja samning með öðrum skilyrðum.

Jeroen Dijsselbloem, fjármálaráðherra Hollands, sem fer fyrir Evruhópnum, varaði við að samkomulag yrði að nást innan örfárra daga. Sagði hann það vera undir Grikkjum komið hvort þeir vildu frekari greiðslur. Náist ekki samkomulag má reikna með að sjóðir Grikkja tæmist fljótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×