Handbolti

Einkunnir strákanna okkar: Aron Rafn bestur

Strákarnir fengu fyrsta stigið á HM í dag.
Strákarnir fengu fyrsta stigið á HM í dag. vísir/afp
Ísland er komið á blað á HM í Frakklandi eftir 22-22 jafntefli við Túnis í hörkuleik í Metz í dag.

Eftir hvern leik íslenska liðsins munu íþróttafréttamenn 365 gefa leikmönnum og þjálfaranum einkunnir.

Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Einkunnir Íslands gegn Túnis:

Björgvin Páll Gústavsson - 2

Náði sér engan veginn á strik og virtist skorta einbeitingu eftir tvo frábæra leiki. Augljós þreytumerki.

Guðjón Valur Sigurðsson - 3

Fyrirliðinn, sem var hvíldur gegn Slóveníum, gerði í sjálfu sér vel en fór illa með færi á ögurstundu. Auðvitað skipti það máli þegar uppi var staðið. Á að gera betur með alla þessa leikreynslu. Spurning hvort Bjarki Már Elísson hefði ekki mátt koma inn á fyrir Guðjón Val.

Ólafur Guðmundsson - 3

Var með smjör á puttunum og tapaði fimm boltum. Tæknifeilarnir alltof margir. Ólafur er hins vegar góður í vörninni og skilaði sínu þar. En auglýsum eftir meira framlagi utan af velli.

Janus Daði Smárason - 3

Skilaði tveimur góðum mörkum og frískaði upp á leik íslenska liðsins þegar hann kom inn á. Spurning hvort ekki hefði mátt hvíla hann í vörninni þar sem hann virtist í vandræðum í bakverðinum. Fékk þrjár brottvísanir og þarf að fækka þeim.

Rúnar Kárason - 4

Spilaði vel. Skoraði fjögur mörk og það sem meira er lagði upp fyrir félaga sína. Skilaði fimm stoðsendingum. Þetta eru nýjungar hjá Rúnari og mjög jákvætt að sjá.

Arnór Þór Gunnarsson - 2

Klúðraði eina skotinu sem hann tók. Atvinnumaður í þýsku úrvalsdeildinni á að skila betra verki fyrir landsliðið. Virtist taugaveiklaður.

Kári Kristján Kristjánsson - 2

Hefur ollið miklum vonbrigðum á HM og enn ekki náð að skora. Hægt að setja spurningarmerki við líkamlegt atgervi hans. Auðvitað hefur hann átt við veikindi að stríða en verður að gera betur.

Ásgeir Örn Hallgrímsson - 2

Hefur engan veginn náð sér á strik á mótinu. Hefur átt við meiðsli að stríða og virðist rúinn sjálfstrausti. Horfir ekki á markið sem er merki um hræðslu og ótta við að gera mistök.

Arnar Freyr Arnarsson - 3

Skilaði í sjálfu sér góðu verki. Skoraði tvö góð mörk. Skilaði sínu í vörninni en var stundum flatur sem skrifast fyrst og síðast á reynsluleysi.

Arnór Atlason - 3

Náði ekki að fylgja eftir góðum leik gegn Slóveníu og virkaði lúinn. Er hins vegar mikill keppnismaður og gæti orðið mikilvægur í síðasta leiknum gegn Makedóníu ef hann nær að endurhlaða batteríin.

Guðmundur Hólmar Helgason - 3

Hans slakasti leikur á HM. Virtist orkulaus en gerði eins vel og hann mögulega gat. Verðum hins vegar gera meiri kröfur á hann.

Gunnar Steinn Jónsson - 2

Spilaði í rúmar fimm mínútur. Oft verið ákall um að hafa hann í landsliðinu og gefa honum tækifæri. Hann verður hins vegar að nýta tækifærið þegar það gefst.

Bjarki Már Gunnarsson - 4

Var einn albesti leikmaður íslenska liðsins. Nánast hnökralaus leikur hjá honum og ánægjulegt að sjá að þessi stæðilegi piltur getur hjálpað í framhaldinu.

Ómar Ingi Magnússon - 3

Geir Sveinsson var gagnrýndur fyrir að gefa Ómari ekki tækifæri í fyrstu tveimur leikjunum. Hann verður hins vegar að gera betur. Tæknifeilarnir alltof margir og á mikilvægum augnablikum sem ekki er leyfilegt á HM. Hélt alltaf áfram og kláraði víti vel.

Aron Rafn Eðvarðsson - 5

Einn hans besti landsleikur. Kom frábærlega inn og varði helminginn af skotunum sem hann fékk á sig í seinni hálfleik. Félagar hans og þjóðin geta í raun þakkað honum stigið mikilvæga sem liðið fékk. Varði lokaskot Túnisa.

Bjarki Már Elísson -

Spilaði ekkert.

Geir Sveinsson - 3

Sóknarleikurinn sveik í þessum leik og vantaði mikið upp á. Liðið skilaði hins vegar 10 mörkum úr hraðaupphlaupum. Spurning hvort ekki hefði mátt hvíla Guðjón Val og einnig Rúnar í vörninni. Átti að nýta leikhléið sem hann átti inni undir lokin en það verður líka að skrifa það á aðstoðarmanninn.

Útskýring á einkunnum:

6 - Heimsklassa frammistaða

5 - Frábær frammistaða

4 - Góð frammistaða

3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu

2 - Ekki nógu góð frammistaða

1 - Slakur leikur


Tengdar fréttir

Ómar Ingi: Góðir og slæmir hlutir hjá mér

Ómar Ingi Magnússon þreytti sína fyrstu alvöru frumraun á HM í dag. Það gekk upp og ofan hjá honum. Hann skoraði fín mörk og gerði sig einnig sekan um slæm mistök.

Geir: Túnis er með öflugt lið

"Það er afríkanskt yfirbragð af einhverju leyti á liði Túnis,“ segir Geir Sveinsson landsliðsþjálfari en drengirnir hans mæta sterku liði Túnis klukkan 13.45 í dag.

Alexander: Langar stundum að vera með

Járnmaðurinn Alexander Petersson er í borgaralegum klæðum í Metz og hann var að fá sér pylsu með fjölskyldunni er Vísir rakst á hann fyrir leik.

Bjarki Már: Komumst upp með ýmislegt í vörninni

„Þetta var skemmtilegur leikur og við fengum heldur betur að berjast mikið í dag,“ segir Bjarki Már Gunnarsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir jafnteflið við Túnis á HM í handbolta í Frakklandi í dag.

Faðir Arnars Freys: Strákurinn er búinn að massa sig upp

„Maður er náttúrulega alveg gríðarlega stoltur af stráknum, hann kom mjög sterkur inn í fyrsta leik,“ segir Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri á Blönduósi og faðir línumannsins Arnars Freys sem sló í gegn í fyrsta leik Íslands á HM.

Toumi: Berum virðingu fyrir íslenska liðinu

"Mér fannst við ná að spila góðan leik. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur enda er Ísland með gott lið,“ sagði Túnisinn Amen Toumi eftir leikinn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×