Handbolti

Einar Andri gerir upp leik Íslands: Stigið losar vonandi um stressið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslenska vörnin var þétt fyrir í leiknum í dag.
Íslenska vörnin var þétt fyrir í leiknum í dag. vísir/afp
„Þetta var spennandi og skemmtilegur leikur að mörgu leyti en svekkjandi að ná ekki að klára hann.“

Þetta segir Einar Andri Einarsson, þjálfari toppliðs Aftureldingar í Olís-deild karla í handbolta og sérfræðingur 365 um HM í handbolta, um leik Íslands og Túnis í Metz í dag. Leiknum lyktaði með jafntefli, 22-22.

Íslenska liðið var tveimur mörkum undir í hálfleik, 11-13, en náði svo góðum kafla í seinni hálfleik og var komið með undirtökin. En óðagot og mistök undir lokin gerðu það að verkum að Íslendingunum tókst ekki að innbyrða sigurinn.

„Frammistaðan í seinni hálfleik hefði átt að duga til sigurs. Við spiluðum mjög vel þar og líka ágætlega í fyrri hálfleik. Við gerðum bara of mikið af einstaklingsmistökum, oft óþvinguð,“ sagði Einar Andri.

Björgvin Páll Gústavsson náði sér ekki jafn vel á strik í fyrri hálfleik í þessum leik og í fyrstu tveimur leikjunum á HM og varði aðeins fjögur skot. Einar Andri kom markverðinum aðeins til varnar.

„Hann fær á sig 13 mörk, þar af eru tvö sem eru skoruð yfir endilangan völlinn sem hann átti ekki möguleika í. Það voru kannski tveir boltar sem hann hefði átt að taka frá [Amine] Bannour. Bjöggi tók það sem hann átti að taka,“ sagði þjálfarinn.

Geir Sveinsson skipti um markvörð í hálfleik og sú skipting breytti leiknum. Aron Rafn Eðvarðsson kom inn á og varði helming þeirra skota sem hann fékk á sig.

Frábær ákvörðun

„Ég var spektískur á þessa ákvörðun því mér fannst Bjöggi ekkert vera úti á túni. En þetta var frábær ákvörðun,“ sagði Einar Andri sem hrósaði einnig Bjarka Má Gunnarssyni sem kom sterkur inn í íslensku vörnina sem hleypti aðeins 14 skotum á markið í seinni hálfleik.

„Hann og Óli [Guðmunds] tengdu vel og Bjarki kom frábærlega inn. Vörnin var mjög þétt, líka þegar Arnar Freyr [Arnarsson] var inn á. Vörnin hefur heilt yfir verið mjög góð í mótinu og markvarslan líka. Við náðum líka upp frábærum hraðaupphlaupum í leiknum,“ bætti Einar Andri við en Ísland skoraði alls 10 mörk eftir hraðaupphlaup gegn Túnis.

Hátt spennustig

Íslenska liðið tapaði 13 boltum í leiknum, oft á mikilvægum augnablikum. Þá reyndust sjö brottvísanir Íslandi dýrar. Einar Andri segir það augljóst að spennustigið sé hátt.

„Brottvísanir og fáránlegir tapaðir boltar ekki undir pressu eru dýrir. Þá fáum við á okkur auðveld mörk úr hraðaupphlaupum og í undirtölu. Spennustigið er hátt og menn ná ekki fram sínu besta. Menn ætla sér svo mikið og leggja allt í þetta en vonandi losar stigið menn við stressið.“

Getan er til staðar

Þrátt fyrir að uppskera íslenska liðsins á HM til þessa sé aðeins eitt stig sér Einar Andri margt jákvætt við frammistöðuna.

„Nú eru hraðaupphlaupin að detta inn. Við þurfum bara að ná réttu spennustigi í sóknarleiknum og þá er þetta allt á réttri leið. Getan er til staðar, strákarnir eru að fara í gang og við förum í 16-liða úrslit,“ sagði Einar Andri að lokum.


Tengdar fréttir

Ómar Ingi: Góðir og slæmir hlutir hjá mér

Ómar Ingi Magnússon þreytti sína fyrstu alvöru frumraun á HM í dag. Það gekk upp og ofan hjá honum. Hann skoraði fín mörk og gerði sig einnig sekan um slæm mistök.

Geir: Túnis er með öflugt lið

"Það er afríkanskt yfirbragð af einhverju leyti á liði Túnis,“ segir Geir Sveinsson landsliðsþjálfari en drengirnir hans mæta sterku liði Túnis klukkan 13.45 í dag.

Alexander: Langar stundum að vera með

Járnmaðurinn Alexander Petersson er í borgaralegum klæðum í Metz og hann var að fá sér pylsu með fjölskyldunni er Vísir rakst á hann fyrir leik.

Bjarki Már: Komumst upp með ýmislegt í vörninni

„Þetta var skemmtilegur leikur og við fengum heldur betur að berjast mikið í dag,“ segir Bjarki Már Gunnarsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir jafnteflið við Túnis á HM í handbolta í Frakklandi í dag.

Faðir Arnars Freys: Strákurinn er búinn að massa sig upp

„Maður er náttúrulega alveg gríðarlega stoltur af stráknum, hann kom mjög sterkur inn í fyrsta leik,“ segir Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri á Blönduósi og faðir línumannsins Arnars Freys sem sló í gegn í fyrsta leik Íslands á HM.

Toumi: Berum virðingu fyrir íslenska liðinu

"Mér fannst við ná að spila góðan leik. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur enda er Ísland með gott lið,“ sagði Túnisinn Amen Toumi eftir leikinn í dag.

Aron: Veit ekki hvort ég bjargaði okkur

Aron Rafn Eðvarðsson kom inn af krafti í íslenska liðið í kvöld gegn Túnis og varði sína fyrstu bolta á mótinu. Markvarsla hans í seinni hálfleik bjargaði oft miklu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×