Eftirlit – eftirlit!

Fréttablaðið Aðsendar greinar 27. janúar 2012 06:00
Jón Bergsson lyfjafræðingur, vottaður úttektarstjóri og ráðgjafi
Jón Bergsson lyfjafræðingur, vottaður úttektarstjóri og ráðgjafi
Jón Bergsson skrifar:
Undanfarna daga hefur umræða um kadmíum í áburði, díoxín í matvælum, iðnaðarsalt og brjóstapúða snúist að mestu um ábyrgð yfirvalda og eftirlitsstofnana þeirra sem eiga að gæta hagsmuna neytenda. Minna hefur verið rætt um ábyrgð framleiðanda vöru eða þjónustu gagnvart neytendum.

Það er nú einu sinni þannig, að sá sem býr til vöru eða þjónustu ber alla ábyrgð á að varan sé eins og til er ætlast (e. fit for purpose) og standist kröfur kaupandans. Til þess verður framleiðandinn að nota rétta uppskrift eða vörulýsingu, hráefni og önnur aðföng, þjálfað starfsfólk, o.s.frv. Þetta er stundum kallað „gæðastjórnun“.

Ekki er nokkur leið að varpa þessari ábyrgð allri eða að hluta á birgja framleiðandans, hvort sem þeir eru sjálfir framleiðendur, innflytjendur eða heildsalar. Því síður er hægt að varpa þessari ábyrgð á yfirvöld og opinberar stofnanir, nema þegar „hið opinbera“ er sjálft framleiðandi vöru eða þjónustu (skólar, sjúkrahús, o.s.frv.). Gera verður greinarmun á opinberu eftirliti með að lögum og reglugerðum sé framfylgt og gæðaeftirliti við framleiðslu á vöru eða þjónustu. Að tryggja gæði vöru er eðlilegur hluti af framleiðsluferlinu, og betra er að stjórna ferlinu þannig að tryggt sé að varan standist kröfur frekar en að reyna að staðfesta það eftir á með sýnatökum og prófunum. Þeir sem hafa kynnt sér tölfræði og líkindareikninga kringum sýnatökur, prófanir og gæðamat vita að aldrei er hægt að segja með fullri vissu að öll framleiðslan sé í lagi þó það sýni sem prófað var sé í lagi. Það er t.d. ekki hægt að fullyrða að allir kjúklingar í tiltekinni slátrun séu ómengaðir af salmonellu þó þau sýni sem prófuð voru séu í lagi. Kjúklingarnir sem sýnin voru tekin úr eru í lagi og ákveðnar tölfræðilegar líkur eru þá á að allir hinir séu líka í lagi. Opinberar eftirlitsstofnanir geta augljóslega ekki verið með í framleiðslu á öllum vörum. Eftirlit þeirra verður að byggjast á sýnatökum og mati með þeirri óvissu sem því fylgir. Og kostnaði.

Eftirlit með loftgæðum, neysluvatni, frárennsli, umhverfismengun og þess háttar á augljóslega að vera á hendi opinberra eftirlitsstofnana og á kostnað skattgreiðenda. Þetta snertir okkur öll – samfélagið. Þessar upplýsingar ættu að vera aðgengilegar, t.d. á vefsíðum, enda safnað til að gæta öryggis almennings. Kostnaður við gæðastjórnun við framleiðslu á vörum og þjónustu á hins vegar að vera hluti af kostnaði vörunnar og á kostnað kaupandans. Hugsanlegt er að þeir sem aldrei borða kjúkling kæri sig ekkert um að greiða fyrir gæðaprófanir á honum með opinberu eftirliti.

En það er önnur leið til að tryggja að neytendur fái rétta vöru og þjónustu. Þetta er leið gæðastjórnunar, eða bara „góð stjórnun“. Gæðastjórnun er einfaldlega það að stjórnendur þeirra fyrirtækja sem selja vöru eða þjónustu taka fulla ábyrgð á því sem fyrirtæki þeirra skilar til neytenda. Það gera þeir með því að vera þátttakendur í öllu sem fram fer innan fyrirtækisins… ekki bara í fjármáladeildinni. Framkvæmdastjórinn ber ábyrgð á því fólki sem hann treystir fyrir ákveðnum verkum og ábyrgð; að búa til gott kaffi, stjórna vélasamstæðu eða prófa sýni á rannsóknarstofu. Lykilhugtök í nútímagæðastjórnun eru t.d.: Ábyrgð stjórnenda, rýni stjórnenda, áhættugreining, skráning, samvinna við birgja, samvinna við neytendur, sjálfsmat og stöðugar úrbætur. Birgjar mega selja iðnaðarsalt til matvælafyrirtækja, en sá sem er ábyrgur fyrir matvælafyrirtækinu á að tryggja að iðnaðarsalt sé bara notað til að salta bílaplanið en ekki í matvöruna sem verið er að framleiða. Á sama hátt má sútunarverksmiðjan kaupa iðnaðarsalt og nota við að súta skinn. Sé það ekki ætlað í þorramatinn.
Það gefur auga leið að nauðsynlegu eftirliti sé best fyrir komið „á staðnum“ í formi framleiðslueftirlits og gæðaprófana. Þar við bætast innri úttektir og sjálfsmat til að sannreyna að öll ferli séu rétt og til að finna tækifæri til úrbóta.

Þetta er kallað eftirlit fyrsta aðila. Þá koma samningar við birgja og úttektir ef ástæða þykir, t.d. með tilliti til áhættugreiningar. Þetta er eftirlit annars aðila. Ef ég væri að kaupa brjóstapúða til að setja í konur mundi ég t.d. íhuga þetta. Eftirlit þriðja aðila er svo allt ytra eftirlit af hálfu opinberra stofnana, t.d. vegna framleiðslu- eða starfsleyfis, og af hálfu viðskiptavina – óski þeir þess. Því betur sem fyrirtæki sinna eftirliti fyrsta og annars aðila því minni er vinna og kostnaður þriðja aðila við það eftirlit sem nauðsynlegt er.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Ekki meira málþóf

Á næstu dögum kemur í ljós hvort Alþingi leggur nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í þjóðara...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Hótel Godzilla

Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að verule...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Leitin að samræðugeninu

Eitt stærsta hlutverk stjórnmálanna er að viðhalda samræðu á milli þriggja mikilvægra þátt...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Eftirlit – eftirlit!