Enski boltinn

Costa kærður fyrir að traðka á Can

Costa var í stanslausum átökum í gær.
Costa var í stanslausum átökum í gær. vísir/getty
Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að kæra Diego Costa fyrir ofbeldisfulla hegðun í leik Chelsea og Liverpool í gær.

Costa traðkaði á Emre Can snemma í leiknum og gerði slíkt hið sama við Martin Skrtel síðar. Hann er kærður fyrir að traðka á Can.

Ef hann verður dæmdur sekur þá gæti hann átt yfir höfði sér þriggja leikja bann sem myndi hefjast strax um næstu helgi.

Costa hefur fram á morgundaginn til þess að svara fyrir sig.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×