Viðskipti innlent

Cisco vill nota Ísland sem tilraunasvæði fyrir Internet alls staðar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Cisco og Gagnaveita Reykjavíkur hafa gert með sér samkomulag sem gera á Ísland að prófunarsvæði fyrir snjalllausnir og Interneti allra hluta.
Cisco og Gagnaveita Reykjavíkur hafa gert með sér samkomulag sem gera á Ísland að prófunarsvæði fyrir snjalllausnir og Interneti allra hluta.
Cisco og Gagnaveita Reykjavíkur munu gefa íslenskum heimilum kost á að fá eins gígabita nethraða á þessu ári. Stefnt er að því að gera Ísland að prófunarsvæði fyrir snjalllausnir og Interneti allstaðar (Internet of Everything).

Samkomulag Gagnaveitu Reykjavíkur og Cisco felur einnig í sér að kynna og koma að verkefnum sem snúa að hágæðalausnum sem nýta ljósleiðaranet Gagnaveitu Reykjavíkur en þetta kemur fram í tilkynningu frá Cisco og Gagnaveitu Reykjavíkur.

Með þessu býðst þeim fyrirtækjum sem bjóða snjalllausnir og alnetslausnir til boða að nýta Ljósleiðarann til innleiðingar og tilviksrannsókna og annarra tilrauna á þeim hér á Íslandi í samstarfi við Gagnaveitu Reykjavíkur og Cisco.

Per Karlström, Senior Vice President fyrir Norður Evrópu hjá Cisco, segir að með þessu verði Ísland að tilraunasvæði fyrir Internet alls staðar.

„Með opnu neti og 100% útbreiðslu Ljósleiðarans í Reykjavík má segja að ímyndunaraflið eitt setji því takmörk hvað hægt er að gera. Það er augljóst að ljósleiðaranet Gagnaveitu Reykjavíkur, sem byggir algerlega á tækni frá Cisco, sé fullkominn prófunarstaður fyrir frumkvöðla og aðra þá sem þróa snjallar lausnir, þar á meðal fyrir snjallborgir og snjallsamfélög, snjallheimili og Internet allra hluta,“ segir Per.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×