Lífið

Channel 5 gagnrýnt fyrir að sýna fyrrverandi konu David Bowie í öngum sínum vegna andláts hans

Birgir Olgeirsson skrifar
Til vinstri má sjá Angie Bowie eftir að hún fékk fregnir af andláti fyrrverandi eiginmanns hennar David. Til hægri má sjá þau saman árið 1974 meðan allt lék í lyndi.
Til vinstri má sjá Angie Bowie eftir að hún fékk fregnir af andláti fyrrverandi eiginmanns hennar David. Til hægri má sjá þau saman árið 1974 meðan allt lék í lyndi. Vísir/Getty
Áhorfendur hafa gagnrýnt forsvarsmenn bresku sjónvarpsstöðina Channel 5 fyrir að sýna viðbrögð Angie Bowie eftir að hún fékk fyrstu fregnir um andlát fyrrverandi eiginmanns síns David Bowie.

Angie er þátttakandi í raunveruleikaþættinum Celebrity Big Brother en sýnd var stutt klippa í þættinum í gær þar sem sjá mátti viðbrögð hennar við þessum fregnum. Hún brotnaði niður og sagði: „Ég hef ekki hitt hann í svo mörg ár, ég get ekki gert of mikið mál úr þessu.“

Angie og David ásamt syni þeirra Zowie.Vísir/Getty
Hún var gift David Bowie á áttunda áratug síðustu aldar og eignaðist son með honum sem þau nefndu Zowie sem sjálfur breytti nafni sínu síðar í Duncan.

Á meðan áhorfendur fylgdust með henni tárvotri heyrðist hún segja við framleiðendur þáttarins: „Það er eins og ákveðnu tímabili sé lokið með fráfalli hans.“

Í Celebrity Big Brother eru þátttakendur með myndavél á sér allan sólarhringinn en framleiðendur þáttarins segja að Angie hefði verið tekin afsíðis til að fá að heyra þessar fregnir frá umboðsmanni sínum. Channel 5 sagði Angie hafa ákveðið sjálf að halda þátttöku sinni áfram í þættinum. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×