Viðskipti erlent

Carlos Slim ríkasti maður heims á ný

Bjarki Ármannsson skrifar
Slim var fyrst ríkasti maður heims á árinum 2010 til 2013.
Slim var fyrst ríkasti maður heims á árinum 2010 til 2013. NordicPhotos/AFP
Mexíkóski fjarskiptajöfurinn Carlos Slim er ríkasti maður heimsins á ný. Bandaríkjamaðurinn Bill Gates, stofnandi Microsoft, er þar með orðinn sá næstríkasti.

Tímaritið Forbes greinir frá því í dag að virði hlutabréfa í símafyrirtæki Slims, América Móvil, hafi í gær aukist svo um munar á bæði bandarískum og mexíkóskum mörkuðum. Eignir Slims eru nú metnar á rúma níu þúsund milljarða íslenskra króna.

Hlutabréf í América Móvil hafa hækkað í verði síðan fyrirtækið opinberaði áætlanir sínar um að losa sig við hluta af eignum sínum í samræmi við nýjar reglugerðir í Mexíkó fyrir símafyrirtæki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×