Viðskipti erlent

Brýna Bandaríkjastjórn til að nýta olíu norðurslóða

Kristján Már Unnarsson skrifar
Ráðgjafanefnd Bandaríkjastjórnar um olíumál hvetur til þess í nýrri skýrslu að olíuleit á norðurslóðum verði hraðað. Umhverfissamtök segja þetta kolranga ályktun.

Skýrslan er þegar farin að virka sem olía á eld í umræðu um loftlagsmál og olíuvinnslu á norðurslóðum. Skilaboðin til stjórnvalda í Washington eru nefnilega þessi, eins og grænlenski fréttamiðillinn Arctic Journal orðaði það: Flýtið ykkur að bora.

Það var svokallað þjóðarráð um olíumál sem vann skýrsluna að ósk orkumálaráðherra Bandaríkjanna en ráðið er skipað fulltrúum bandaríska olíugeirans, embættismönnum og óháðum sérfræðingum. Tilgangurinn var að meta þörfina á olíuvinnslu á þeim norðlægu svæðum sem Bandaríkin ráða yfir, sem öll eru í Alaska.

Meginniðurstaðan er sú að Bandaríkjastjórn er eindregið hvött til þess að flýta sem kostur er olíuleit á norðurslóðum, annars eigi Bandaríkin það á hættu  að verða aftur háð innflutningi á olíu. Í skýrslunni er bent á að stóruaukin vinnsla svokallaðrar bergbrotsolíu úr jarðlögum muni vart endast nema í rúman áratug. Því sé ekki seinna vænna að hefjast handa að nýta hinar miklu auðlindir norðurslóða enda taki minnst áratug að undirbúa olíuvinnslu þar.

Skýrsluhöfundar viðurkenna þá erfiðleika og áhættu sem fylgi olíuleit á viðkvæmum heimskautasvæðum. Þeir segja hins vegar að olíuiðnaðurinn búi nú þegar yfir tækni og þekkingu til að unnt sé að vinna olíu þar á ábyrgan og öruggan hátt.

Bandarísk umhverfissamtök hafa þegar brugðist við skýrslunni, segja að sú ályktun skýrslunnar að finna þurfa meiri olíu sé kolröng, svarið eigi að vera að draga úr þörfinni fyrir jarðefnaeldsneyti í stað þess að ógna náttúrunni og framtíð jarðarbúa með loftlagsbreytingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×