Viðskipti innlent

Brotthvarf að verða frá Starbucks-menningu

Ingvar Haraldsson skrifar
Kristbjörg segir tækifæri fólgin í að auka sérstöðu Kaffitárs.
Kristbjörg segir tækifæri fólgin í að auka sérstöðu Kaffitárs. Vísir/Hanna
„Það er náttúrulega miklu meira framboð í dag og hraðinn alveg gríðarlegur,“ segir Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir, nýr forstjóri Kaffitárs, um breytingar sem orðið hafa á kaffivenjum Íslendinga síðustu ár.

„Starbucks-menningin hefur svolítið rutt sér til rúms í dag og gæðin ekki endilega í fyrirrúmi. En ég held að þetta sé að koma svolítið til baka. Fólk er farið að leggja meiri áherslu á gæði umfram magn og það er verða til þessi „slow brew“ menning því það er svo margt annað í boði en bara latté til að taka með.“ Kristbjörg tekur við starfinu af Aðalheiði Héðinsdóttur, stofnanda Kaffitárs, sem sinnt hefur starfinu frá árinu 1990. Kristbjörg segir Aðalheiði ætla að hverfa frá daglegum rekstri en einbeita sér að kaffinu sjálfu. „Hún er örugglega sá Íslendingur sem mesta þekkingu hefur á kaffi og hefur getið sér gott orð erlendis,“ segir Kristbjörg um forvera sinn.

„Þannig að ég tek við rekstrinum og ekki síst markaðsmálunum. Þetta er náttúrulega frábært vörumerki, Kaffitár er orðið 26 ára,“ segir Kristbjörg. Hún vill leggja meiri áherslu á sérstöðu vörumerkisins Kaffitárs í starfinu. „Þessari sérstöðu hefur kannski ekki verið komið nægjanlega vel á framfæri. Það hefur kannski týnst undanfarin ár með auknu framboði af kaffi,“ segir Kristbjörg en bakgrunnur hennar er í vörumerkjastjórnun og markaðsmálum. Hún starfaði sem forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Men and Mice ehf. síðustu tvö ár. Áður var hún forstöðumaður markaðssviðs Símans og þar áður starfaði hún hjá Össuri í ellefu ár, meðal annars sem framkvæmdastjóri markaðssviðs fyrir Evrópu og framkvæmdastjóri vörustjórnunar.

Kristbjörg segir mikil tækifæri fylgja hinum aukna ferðamannastraumi til Íslands. Hingað til hafi starfsemi Kaffitárs að stærstum hluta verið í sölu á kaffi til Íslendinga í gegnum sölu til fyrirtækja, matvöruverslana og kaffihúsa. Ferðamennirnir komi fyrst og fremst á þau kaffihús sem eru nærri vinsælum ferðamannastöðum en Kaffitár rekur sjö kaffihús undir merkjum Kaffitárs og eitt undir merkjum Kruðerí Kaffitárs sem er einnig bakarí. Nýtt Kruðerí verður opnað innan skamms á Stórhöfða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×