Golf

Bridgestone Invitational hefst í dag

Pressan verður á Woods um helgina.
Pressan verður á Woods um helgina. AP/Getty
Bridgestone Invitational hefst í dag en mótið er hluti af heimsmótaröðinni í golfi ásamt því að vera eitt stærsta mót ársins á PGA-mótaröðinni. Allir bestu kylfingar heims taka þátt en Tiger Woods hefur titil að verja eftir að hafa sigrað mótið með glæsibrag í fyrra.

Hann hefur unnið mótið alls átta sinnum á ferlinum og því gæti það ekki komið á betri tíma fyrir Woods sem reynir nú að koma sér í form fyrir Ryderbikarinn í haust.

„Þrátt fyrir að ég hafi unnið mótið svona oft þá finn ég samt ekki fyrir aukinni pressu um helgina,“ sagði Woods við fréttamenn í gær. „Ég hef bara mikla reynslu héðan af alls konar aðstæðum og ég mun nýta mér hana ásamt þeim góðu minningum sem ég hef af vellinum. Ég er viss um að það á eftir að hjálpa mér mikið um helgina.“

Woods leikur með Þjóðverjanum Martin Kaymer á fyrsta hring á Firestone vellinum en besti kylfingur heims, Adam Scott, spilar með Masters meistaranum Bubba Watson.

Þá verða augu margra eflaust á Rory McIlroy eftir frækinn sigur á Opna breska en hann spilar með Bandaríkjamanninum Matt Kuchar í dag. Bridgestone Invitational verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni alla helgina og hefst útsending frá fyrsta hring klukkan 17:30 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×