Viðskipti innlent

Brexit hefur ekki áhrif á stefnu Easyjet varðandi Ísland

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Easyjet hóf flugferðir til Íslands árið 2012 og hefur þeim farið ört fjölgandi.
Easyjet hóf flugferðir til Íslands árið 2012 og hefur þeim farið ört fjölgandi. Vísir/Pjetur
Andy Cockburn, talsmaður Easy Jet, segir stefnu flugfélagsins hvað varðar flugferðir til Íslands ekki hafa breyst í kjölfar þess að Bretar kusu í þjóðaratkvæðagreiðslu að fara út úr Evrópusambandinu. Búist var við því að í kjölfar ákvörðunarinnar myndi eftirspurn Breta eftir ferðum til Íslands, og ferðalögum almennt, minnka vegna lækkunar breska pundsins. Frá þessu er greint á vef Túrista.

Easy Jet flýgur mikið til Íslands og er í raun stærsta erlenda flugfélagið hér á landi. Komu hingað til lands 149 Easy Jet þotur í mars síðastliðnum. Enn sem komið er virðast Bretar ekki hafa látið Brexit, en það hefur þjóðaratkvæðagreiðslan verið kölluð, haft áhrif á ferðaáætlanir sínar.

„Eftirspurn eftir flugi okkar til Íslands heldur áfram að vera mikil. Síðustu ár höfum bætt við nýjum flugleiðum til Íslands og Reykjavík er ennþá ört vaxandi markaður fyrir easyJet. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar mun ekki hafa nein efnisleg áhrif á stefnu okkar sem byggist á því að fókusera á leiðandi flugvelli og svæði sem mikil eftirspurn er eftir,” segir Andy Cockburn.

Enn er þó tiltölulega stutt síðan gengið var til kosninga um Brexit eða um þrjár vikur og því erfitt að segja með fullri vissu hvort Brexit hafi letjandi áhrif á ferðahug Breta.

Fjölmargir Bretar hafa lagt leið sína til Íslands á undanförnum árum. Bretar voru 33 prósent ferðamanna sem komu til Íslands í febrúar á þessu ári eða rúmlega 43 þúsund samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Bretar hafa undanfarin ár verið hvað duglegastir allra þjóðerna við að koma til Íslands á vetrarmánuðum. Á sama tíma komu rúmlega 16 þúsund Bandaríkjamenn sem var sú þjóð sem átti flesta ferðamenn á Íslandi á eftir Bretum.

Því eru breskir ferðamenn afar mikilvægir ferðaþjónustunni, sérstaklega utan háannatíma. 


Tengdar fréttir

Theresa May tekur við af Cameron í dag

Theresa May, nýr leiðtogi breska Íhaldsflokksins og næsti forsætisráðherra Bretlands, er sögð ótúreiknanleg og erfið viðureignar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×