Golf

Branden Grace efstur eftir fyrsta hring í Kína

Branden Grace ásamt kylfusveini sínum Zack á fyrsta hring.
Branden Grace ásamt kylfusveini sínum Zack á fyrsta hring. Getty
Suður-Afríkumaðurinn Branden Grace lék frábært golf á fyrsta hring á HSBC Meistaramótinu sem fram fer á Sheshan International vellinum í Kína en hann kom inn á 63 höggum eða níu undir pari.

Grace lék gallalgaust golf og fékk níu fugla og níu pör á hringnum en þrír kylfingar deila öðru sætinu á átta höggum undir pari.

Skor þátttakenda var mjög gott á fyrsta hring og flestir undir pari enda aðstæður í Kína mjög góðar til þess að skora vel, flatirnar mjúkar og veðrið milt.

Þar má nefna að Bubba Watson, Rickie Fowler, Jordan Spieth og Rory McIlroy léku allir á 68 höggum eða fjórum undir pari en sá síðastnefndi spilaði þrátt fyrir að hafa fengið matareitrun fyrr í vikunni.

HSBC Meistaramótið er fyrsta heimsmótið á tímabilinu og því eru margir bestu kylfingar heims meðal þátttakenda enda er verðlaunaféð gríðarlega hátt.

Bein útsending verður alla helgina á Golfstöðinni en útsendingartíma má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×